Fórum í lok október 2006 í árshátíðarferð með vinnunni. Svona það helsta sem var gert í þessari ferð fyrir utan sjálfa árshátíðina var að fara á Neu Camp og sjá Barcelona spila við Recretivo Huleva. Svaka stuð fyrir utan hvað það er glatað að fara á leiki á Spáni miðað við á Englandi. Óttaleg jarðarfarastemming miðað við hvernig þetta er í sjálfu mekka fótboltans í Liverpool.
Svo fórum við í skoðunarferð upp í Monserat sem er munkaklaustur upp í fjalli þarna í um 2 tíma akstri frá Barcelona. Mjög fallegt þarna og ótrúlegt að keyra þerna upp í þessa fjallshlíð.
Að öðru leyti var bara labbað um römbluna og pöbbarnir skoðaðir þess á milli.