1995
Þegar ég var í grunnskólanum á Djúpavogi þá tíðkaðist það hvert ár að 10 bekkur færi í útskriftarferð. Safnað var fyrir ferðinni allt árið og svo haldið af stað strax eftir samræmdu prófin. Fyrir valinu varð Danmörk og byrjuðum við á því að fara til Kaupmannahafnar.
Þarna var bara hinn almenni túristi tekinn á þetta. Skoðað söfnin, farið í tívoli, verslað á strikinu og svo framvegis.
Einni tókum við lest til Hróaskeldu og skoðuðum okkur aðeins um þar. Megin ástæðan fyrir þeirri ferð var þó að Særún var í skóla þar og fórum við í heimsókn til hennar.