Í upphafi 2003 þá unnum ég og Sverrir vinnu félagi minn smá sérforritunarverkefni fyrir Sport.is og fengum í staðinn lúxus ferð á vináttuleikinn England Ísland sem var haldinn á Manchester City vellinum í Manchester.
Þetta var skemmtileg ferð þrátt fyrir að leikurinn hafi ekki verið nein ógurleg skemmtun enda um vináttuleik að ræða. Hann endaði 6-1 fyrir England. Stoppuðum í 3 daga í Manchester og keyrðum svo niður til London og stoppuðum þar í 2 daga.