Júlí-Ágúst 2008
Hverjir: Gunni og Sonja
Eftir miklar pælingar um það hvað við ætluðum að gera þetta sumarið þá komumst við að þeirri niðurstöðu um að leigja okkur bílaleigubíl og keyra um Evrópu. Gáfum okkur tæpa 20 daga í þetta og settum upp djarft plan. Planið var þó mjög breytilegt þannig að ef eitthvað myndi klikka þá gætum við alltaf stytt ferðina ef þess þyrfti.
Á endanum gekk planið svo bara ágætlega upp og keyrðum við rúma 6000 km. Fórum til 14 landa og skoðuðum fullt af flottum stöðum.
Vorum heppin með veður allsstaðar nema fyrsta daginn í Þýsskalandi. Það rigndi þar en kom lítið að sök þar sem við keyrðum mesta allan daginn. Eftir það bara batnaði veðrið jafnt og þétt og var kominn sól og blíða á öðrum degi.