Gestrisnin hélt svo áfram þegar við vöknuðum hérna í Kranskja Gora. Klukkan 9 beið okkar þessi líka dýrindis morgunverður. Steikt Ommiletta handa Sonju og Beikon og egg handa mér. Auk þess voru ný bökuð brauð, eitthvða skyr-jógúrt ofl.
Eftir góðan morgunverð var svo gert sig tilbúin og haldið af stað í átt til Budapest. Eftir ráðleggingar frá hóteleigandanum, þá ákváðum að sleppa því að keyra í gegnum Slovenju þar sem vegatollarnir eru svo dýrir þar. Því var keyrt í gegnum Austurríki, nokkurn veginn á landamærunum og svo farið yfir í Ungverjaland.
Við vatn í Austurríki
Keyrðum alveg óvart frammeð flottu stóru vatni í Austurríki þar sem virtist vera mikið um vatnasport. Virkaði á okkur sem spennandi staður til að koma aftur til.
Það var svo ansi skondið að fara yfir landamærin til Ungverjalands. Það var nokkurnveginn eins og að spóla 20-30 ár aftur í tímann. Mikil fáttækt í þessu landi og allt frekar hrörlegt. Húsin illa við haldin og þess háttar. Það þó skánaði jafnt og þétt er við nálguðumst Búdapest.
Á þessari leið tókum við smá útúrdúr og keyrðum frammeð stóru vatni hérna í Ungverjalandi sem heitir Balton. Þetta er risastórt vatn og er eflaust Garda-vatn þeirra ungverja, samt ekki eins flott. Þarna var mikil túristastemming í smábæjunum sem var þarna meðfram vatninu. Allsstaðar fólk í sólbaði og eitthvað að djöflast út í vatninu. Svo var ansi skondið að á mörgum stöðum þá voru svona bekkir 100 metra út í vatninu. Á þeim sat fólk svo bara með veiðistöng og var að veiða.
Eftir að hafa þrætt nokkra smábæi meðfram vatninu héldum við bara upp á hraðbraut og brunuðum til Budapest. Komum þangað um 9 leytið, keyrðum í gegnum miðbæinn hérna þegar það var komið svona hálfmyrkur. Verð að segja það að miðbærinn hérna svona við fyrstu sýn er alveg ótrúlega flottur. Flottar byggingar og brýr meðfram ánni. Verður bara gaman að skoða sig aðeins um hérna á morgun. Fundum svo hostelið okkar sem var staðsett alveg í miðbænum. Fengum 2 manna herbergi, mjög fínt. Þetta er svona háskóla heimavist á veturnar og er svo breytt í hostel á sumrin. Eina sem hægt er að setja út á hérna er að hvert herbergi deilir baðherbergi með herberginu við hliðina, já og svo er ekki þráðlaust innternet hérna. En við ættum nú að getað lifað við það í 2 daga.