Þegar ég var í árshátíðarferð með Outcome 2006 þá fórum við nokkur úr hópnum á leik með Barcelona. Þeir voru að spila við Recretivo Hulvea.
Það var ansi gaman að koma þarna og sjá leik á Neu Camp enda einn flottasti völlur í heimi. Það skemmdi ekkert fyrir heldur að Eiður Smári var í byrjunarliðinu. Gerði þo ekkert að viti í leiknum.
Stemmingin þarna var samt sem áður ekkert sérstök, óttaleg jarðarfarastemming miðað við leiki á Englandi.
Engu að síður ágætis skemmtun.