Mars 2009
Hverjir: Gunni, Doddi
Ég og Doddi ákváðum með viku fyrirvara að fara út á Liverpool vs Real Madrid. Og það var eiginlega algjör heppni að við gátum fengið miða á þann leik með svona stuttum fyrirvara þar sem enginn var að bjóða upp á ferðir þangað. Ákváðum svo bara að láta reyna á það hvort við gætum fengið miða líka á útileikinn á Móti United nokkrum dögum seinna.
6 dögum fyrir Real Madrid leikinn fengum við skilaboð að utan að við værum komnir með miða og þá var bara farið það að ganga frá restinni. Gerðum bara góða ferð úr þessu og tókum helgina fyrir í London og fórum svo upp til Liverpool á mánudeginum og vorum þar fram á laugardagskvöld.
Fengum algjöra draumaleiki, Liverpool vann Real Madrid 4-0 á Anfield og vann svo United 1-4 á Old Trafford. Það eitt að ná tveimur svona stórleikjum í sömu vikunni gerist á tug ára fresti hjá Liverpool. Hvað þá að að hitta á tvo stórsigra í þokkabót.