05.04.2005 - apríl
Ég, Anton, Stebbi, Doddi og Jón Ívar fórum til Liverpool að horfa á Liverpool vs Juventus í meistaradeildinni. Um var að ræða leik í 8 liða úrslitum. Þessi leikur var frægur fyrir það að þetta var í fyrsta skipti sem Liverpool og Juventus mættust eftir Heysel slysið. Þarna voru akkúrat liðin 20 ár síðan.
Þessi leikur var algjör snilld, enda vann Liverpool hann 2-1 þar sem Sami Hyypia og Luis Garcia skoruðu mörkin.
Lítið annað gert en að horfa á leikinn og kíkja á næturlífið eftir hann.