Beint á leiðarkerfi vefsins

Gagnasvæði

Dagbókin

<< Fyrra Nýjustu færslurnar Næsta >>
Sjá Nýjustu | Allar Eða birta eftir árum | mánuðum | dögum

11.maí 2006

Ferdalagid halfnad

Jaeja er ekki best af fara spita i lofana og setja einhverjr reglulegar frettir inn a thessa sidu.  Allavega sidan sidast tha klarudum vid ad keyra upp til Chicago.  Skiludum husbilnum goda thar og leigdum okkur Buick til ad keyra til New York.  Tokum a okkur 200 milna krok og keyrdum upp til Canda til ad sja Niagra Falls ju og til ad fa Canada stimpilinn i vegabrefid (H). Svo var bara brunad til New York. 
 
Nuna eru Fridgeir og Anna Sigga farinn heim a klakann i alvoru lifsins en hja mer er thetta bara halfnad.  Er buinn ad vera herna i nokkra daga i New York og labba um og skoda flest held eg.  Gisti herna a risa storu hosteli, orugglega 500 manns eda eitthvad alika.  Nog ad gera og madur er buinn ad kynnast fullt af folki.  Party oll kvold ef madur hefur ahuga a thvi og ad sjalfsogdu situr madur nu ekki heima (H). 
Framhaldid er svo thannig ad ef flyg a morgun til Quito i Ekvador og svo 2 dogum seinna til Galapakos.  Stoppa thar i nokkra daga og svo fer eg i Trukkaferdina.
 
Svo mer til mikillar anaegju tha fyrir nokkrum dogum tha var eg a rolltinu herna og haldidi ad eg hafi ekki fundid uti gervigrasvoll.  Og ad sjalfssogdu er madur buinn ad fara a hverjum degi sidan thangad og spila fotbolta.  Thad eru alltaf einhverjir thar og madur faer alltaf ad vera med.  
 
Jaeja, atli thad se ekki best ad fara koma ser ut a voll og sprikla sma fyrir kvoldid.
 
Fridgeir og Anna Sigga, takk fyrir frabaert ferdalag undanfarna manudi og sjaumst hress og kat i haust.
 
Kvedja
Gunni
 

27.apríl 2006

Nyjar frettir

Jaeja jaeja bornin god (getur einhver lesid hvad stendur tharna?)

Madur ma ekki skreppa nidur til Mexico og ut til Grand Canyon og tha er bara farid ad heimta frettir. Vid semsagt nadum i Husbilinn sem vid leigdum, og vaaaa' hann er rosalegur. Litil ibud a hjolum. Alvoru sturta (med mini-badi) alvoru klosett, eldavel, ofn (alvoru ofn Annska bakadi koku i honum um daginn) og plass fyrir 6 til ad sofa. Svo er thetta lika thessi fini ameriski Chevvy (og eydir eftir thvi).

Tijuana

Tijuana

Vid keyrdum sem leid la nidur til Mexico og skodudum Tijuana sem er landamaerabaer. Til ad komast til Tijuana tharf madur ad fara i gegnum Berlinarmur theirra amerikana sem heitir SanDiego-Tijuana Wall og var hent upp til ad stodva flod ologlegra innflytjenda til Ameriku, engu var skeytt um fjolskyldur sem bjuggu sitthvorumeginn vid vegginn, en hverjum er ekki sama bandarikjamenn hafa alltaf fengid ad komast upp med hvad sem er.

Mexico er skemmtilegur stadur og ad keyra i gegnum Mexico er orugglega jafn mikil upplifun og ad keyra i gegnum USA, en thad bidur betri tima. Thegar vid komum aftur yfir landamaerin attudum vid okkur a thvi ad vid hofdum engan stimpil fengid thegar

Twall

Tijuana veggurinn

 vid forum til Mexico og svo fengum vid engan a basnum sem vid lentum a a leid inn til ameriku thannig ad vid bara smelltum okkur aftur yfir til Mexico og fengum stimpil og svo aftur yfir til USA og fengum engan stimpil buhu.. en nuna hofum vid komid 2svar til Mexico.

Sidan la leidin til Las Vegas og VAAaa' (aftur) hun er sko "fake" thad er ekki til sa hlutur sem er ekta i Las Vegas, meiradsegja grasid a umferdareyjunum er gerfigras, ad madur tali nu ekki um gerfi Sfinxinn, gerfi Eiffel turninn, gerfi pyramidann, gerfi Sigurbogann, gerfi London Bridge yfir gerfi a'nna og svo framvegis. Ekkert

LasVegas

Las Vegas

ekta nema peningarnir sem hreinlega eru allstadar, allstadar haegt ad vinna bila og svaka upphaedir i spilakossum og folk i hvitum skyrtum og svortu vesti med slaufu ad gefa i 21, poker eda snua rullettunni. Vid topudum samtals um 30$ og letum thad naegja, en saum mikid eftir Lexusnum sem vid unnum ekki. Las Vegas er borg ljosanna og thad er svolitid skrytid ad yfirgefa hana i bjortu, oll thessi oupplystu skilti og eiginlega engin umferd.

Naest kom ad Hoover Dam (engin Karahnjukastifla en hun var i leidinni) tilkomumikil en madu hefur svosem sed stiflur adur, gaman ad keyra yfir hana thessa samt. Vid keyrdum sidan sem leid la til Grand Canyon og hneyksludum okkur a thvi ad thad kosti 20$ inn, en gleymdum thvi

grandCanyon

Mikla Gljufur

fljott thegar gljufrid opnadist fyrir framan okkur og 500m beint fall nidur a gljufurbotn kom i ljos. Thad er mikid af gljufrum a islandi en thetta er rosaleg sjon, madur getur bokstaflega sed 2 milljarda ara throun i jardlogum fyrir framan sig. Gljufrid er lika svo margslungid og magnthrungid ad thvi verdur ekki lyst i ordum og vid Anna Sigga og Gunni logdum mikid a okkur til ad na myndum til ad hraeda Drifu med i Eurovision partyinu. Solsetrid vid Mikla Glufur er upplifun sem a ser ekki hlidstaedu (eins og amma hans Gunna myndi orda thad). Skuggarnir af ollum thessum klettum og sulum og litirnir ... aeii thetta er bara magnad.

Vid erum sidan buin ad keyra i gegnum Arizona med ollum synum klettum og haslettum og New

AZ1

Arizona

Mexico med oendalegum breidum af sandi og runnum. Vid erum eins og er i Santa Rosa og erum a leid i bad i The Blue Hole sem er stoduvatn sem einhverra hlutavegna helst stodugt 62 gradu heitt (fahrenheit). Vid hofum verid ad keyra Route 66 sem er aeskudraumur Fridgeirs og stefnum a ad keyra alla leid til Chicago naestu 10 dagana (komin thangad 7. mai). Framhaldid raedst sidan thar en nefnt hefur verid til sogunar ad kikja upp til Canda og a

NewMexico

New Mexico er flatt

Niagara fossana, en hvad thad verdur veit nu enginn eins og skaldid sagdi og skrifadi.

27.apríl 2006

bumban fina

Bumba

Hressandi oskyr mynd af bumbunni sidan i Los Angeles! ;) Krilid staekkar og staekkar og eg er komin 22 vikur a leid (5 manudi). Vid komum heim alveg rett bradum.. bara eftir 15 daga eda svo og tha verdur Eurovision aldeilis tekid med trompi og Silvia Night shining in the light aelar sko ad landa sigrinum og vid aetlum aldeilis ad hvetja stelpuna til dada i Eurovisionpartyi aldarinnar ;) Knus og kossar fra innsveitum Bandarikjanna!

20.apríl 2006

Hollywood

Eins og sest af ollum thessum nyju faerslum erum vid i USA thar sem internet-cafe eru a hverju

Fame

Walk of Fame

 horni (og starbucks er hinu megin). Vid aetlum ad eyda deginum i allt thetta venjulega turista daemi, Hollywood skiltid, Walk of Fame (stjornurnar i gagnstettinni) og Rodeo Drive. Faum bilinn a morgun og akvedum i kvold hvert vid aetlum

sign

Hollywood skiltid

(hvort mexico se inni i myndinni eda hvort vid hofum ekki tima til thess).

20.apríl 2006

SKRA SIG I GESTABOKINA

Vid erum alltaf ad heyra af folki sem er ad skoda siduna, en engin skilur eftir komment eda faerslu i gestabokinni buhuhu, tha verdum vid daprir ferdalangar og vegurinn virdist langur og vedrid drungalegt.

20.apríl 2006

Tahiti er vidbjodur

Kannski helst til hart til orda tekid en fyrr ma nu aldeilis fyrr vera ad eftir ad hafa farid i tjekk inn og oryggisleit a Rarotonga tha thurftum vid ad taema flugvelina a Tahiti. Thetta var adeins 1,5 klst flug tharna a milli og svo var ollum hent ut og ollum handfarangri med. Svo fengum vid ad upplifa 320 manna rod sem oll thurfti ad fara i gegnum oryggistjekk aftur til ad fa ad standa i rod til ad komast um bord i SOMU flugvel, ekkert stopp, enginn for ut ur frihofninni og thetta tok BARA klukkutima en vaeri ekki meira vit i thvi ad leyfa folki ad bida i velinni. Thad voru meiradsegja menn i plasthonskum med bord vid gate-id ad velinni ad leita ad "animal parts" og "live animals" hvar attum vid ad hafa komist i svoleidis? Thad er ekki a hverjum degi sem madur finnur yfirgefinn kettling og akvedur ad smygla honum a milli landa. Okkur fannst thetta soun a tima og raunar bara gert til ad pirra mann (og fa mann til ad versla ser eitthvad kalt ad drekka a medan madur stod i klukkutima i thessari bull-conga-macarena-rod. En nuna erum vid kominn til Amriku og erum buin ad redda okkur Motorhome billegt og gerum rad fyrir ad leggja i hann um leid og Hollywood Walk of Fame og Hollywood skiltid hefur verid skodad og svo er thad bara Grand Canyon, Mount Rushmore, Yellowstone, Yucan skaginn, Route 66 og Niagara fossinn adur en vid komum heim.

18.apríl 2006

Leynigestur a paskadag..

I gaer sat eg i rolegheitunum uppi rumi og var eitthvad ad dunda mer. Fridgeir og Gunni skruppu eitthvad ut og thegar their komu aftur var Fridgeir med rosa fallegan kudung handa mer sem hann smellti vid hlidina a mer i ruminu. Mer fannst thetta aegilega fallegur kudungur og var voda anaegd. Eg sat bara afram og helt afram ad dunda mer thegar eg allt i einu tek eftir thvi ad kudungurinn fini var ekki lengur svo fallegur heldur var kominn med ljotan krabbahaus og klaer og var farinn ad hreyfast, A RUMINU MINU! Eg gargadi fra mer vit og raenu og vakti alla a eyjunni thvi thad var staddur kudungakrabbi uppi hja mer og eg var ekkert serstaklega satt vid thad. Fridgeir bjargadi lifi minu hid snarasta og fjarlaegdi kvikindid. Sidan tha finnst mer ekkert heillandi vid skeljar og kudunga. Maeli ekki med thvi ad hafa krabba uppi rumi hja ser a paskadag ;)

18.apríl 2006

Kveðja úr fortíðinni

Þið heima vonandi áttið ykkur á því að við náum ekki að segja frá helmingnum af því sem gengur á í þessari ferð. Internetið er ekki allstaðar (jú víst) og við nennum ekkert að leita að því allan daginn höfum alveg nóg að gera (t.d. að liggja í sólinni) Við setjum inn eins mikið og við getum (nennum) og restina verðið þið bara að sjá og lesa um á DVD diskinum (kemur út haustið 2006, 1998 kr í forsölu, pantið í tíma takmarkað upplag).
 
Ég ætla að bregða út af vananum og segja frá því sem við ÆTLUM að gera en ekki hvað hefur verið að gerast. Stefnan er semsagt að fara EKKI til Tahiti (lendum þar en höldum beint áfram). Ástæðan: jú við sáum fram á að komast ekkert út úr borginni og út á hinar eyjarnar. Fólkið hérna á Rarotonga (sem btw er allt geggjað næs omg nkl) er búið að segja okkur að Papeete er bara stórborg og ekkert í hana varið sem Egilsstaðir geta ekki boðið upp á líka, fyrir utan það er hún dýr, skítug og lyktar af hlandi (einhver rígur í gangi eða?). Eftir að hafa spáð duglega í spilin ákvaðum við að USA væri meira spennandi og stórborgirnar þar stærri og betur lyktandi.
 
Núna erum við semsagt að standa í því að leita okkur að vinnu í USA, hugmyndin er að gera það sama og í NZ að finna fyrirtæki sem þarf að láta keyra bíl fyrir sig á milli tveggja staða (annar augljóslega LA og hinn einhversstaðar í nágrenni við NY) og borga þeim lítið sem ekkert fyrir að nota bílinn. Við höfðum hvort eða er ekkert plan um hvað við ætluðum að gera og getum alveg eins látið einhvern annan segja okkur hvert við erum að fara.

15.apríl 2006

Cook eyjar

 

rarotonga

I sol og sumaryl..

Vid erum stodd a Rorotonga, Cook eyjum. Her er svo sannalega sol og sumarylur! Vid hofum dvolina a austurstrondinni og gistum i kofa uppi fjalli. Kofinn var otrulega flottur, med utsyni yfir strondina og nog plass. Vid vorum meira ad segja med thvottavel! Svoleidis munadur er eitthvad sem vid hofum ekki verid ad venjast upp a sidkastid. Vid leigdum okkur vespu og brunudum um sveitirnar. Eyjan er otrulega falleg og gistingin okkar la nidur ad loni med nokkrum minni eyjum i. Anna Sigga og Fridgeir toku sig til og snorkludu ut i eina eyjuna og skodudu fallegu fiskana i sjonum. Thetta er eins og ad synda i gullfiskaburi, med Nemo-fiska utum allt. Vid saum skotu og stingray og heilu torfurnar af gegnsaejum fiskum. I gaer akvadum vid ad skella okkur ut ad borda og svo

Nemo

Nemo-fiskur

a danssyningu. Strakarnir fengu loksins steikna sem their voru bunir ad thra alla ferdina svo allir voru gladir. Eftir matinn var skutl nidur i bae a skemmtistadinn thar sem syningin for fram. Syningin var geggjud og allir dansarar og trommuleikarar i frumbyggjabuningum, stelpurnar meira ad segja i brjostahaldara ur kokoshnetum. Thegar leikar stodu sem haest voru islensku ferdalangarnir dregnir upp a svid og vid donsudum med heimamonnum magadans og skemmtum okkur konunglega. Eftir syninguna donsudum vid og sumir drukku vatn og adrir bjor. Tonlistin var gjorsamlega

skata

Stingray

eins og ad vera staddur a Oliver thannig ad stemningin var kunnugleg. Thegar lida tok a kvoldid for oletta folkid heim og Gunni vard eftir med hinum bakpokaferdalongunum og endadi kvoldid i gitarstemningu a strondinni.

Vid skiputum um gistingu i morgun og fengum rosa flott hus nidur a strond og erum endlaust satt med thad. Vid lengdum dvolina her a eyjunni og forum til Tahiti 18april. Ekki slaemt ad eyda paskunum i solbadi a strondinni thega madur er audvitad vanur ad skella ser a skidi, sma breyting! Vid erum i dag bara buin ad liggja i solinni og slaka duglega a. Naestu dagar fara i eitthvad svipad. Snorkl, solbad og rommyspil. Nuna er bara um ad gera ad passa sig a ad brenna ekki eins og einhverjir toku duglega ut a Bali.

12.apríl 2006

Aevintyri i Mumbai

Eina kvoldstund thegar vid Gunni vorum alveg ad deyja ur kok thorf akvadum vid ad leggja i leidangur. Anna Sigga vard eftir heima og passadi virkid. Vid fundum fyrsta leigubilstjorann sem taladi ensku og badum um koka kola. Hann tilkynnti okkur ad allt vaeri lokad og lokad samkvaemt logum. Vid gerdum honum grein fyrir thvi ad thetta vaeri neydartilfelli og eftir sma radstefnu vid hina leigubilstjorana i hverfinu var okkur tilkynnt ad thessu vaeri reddad. Thad var brunad eftir tomum gotunum og ad lokum beygt inn i mjott koldimmt husasund thar sem kannski 20 manns stodu og keyrt aftur fyrir hus thar sem sast inn i eldhus. Okkur leist ekki a blikuna, engin leid ut ur husasundinu nema gegnum thvogu af Indverjum. Vid letum slag standa (eda Fridgeir) og brunudum inn (Fridgeir fyrst og svo 4-6 Indverjar a eftir) Gunni thordi ekki annad en ad elta til ad passa strakinn og adrir 6 fylgdu a eftir. Okkur var leitt ut i gegnum eldhusid og inn i matarsalinn og upp um 3 haedir af throngum stigum og inn langan gang. Ufff ekki skanar thad. En svo var komid ad hurd med tveim risastorum dyravordum sem spurdu hvad okkur vanhagdi um, vid sogdum KOK og var hleypt inn. Tharna stodum vid i Havaii skyrtum og stuttbuxum med tvohundrud manns i finum fotum og hermannabuningum reykjandi vindla og drekkandi koniak. Vid vorum semsagt maettir a einhverskonar "after hours" privat klubb fyrir mafiosa, rika folkid og yfirmenn i hernum (liklegast tha spilltu) til ad kaupa okkur kok. Vid gengum kokhraustir ad barnum og barum upp erindid. Barthjonninn tilkynnti okkur ad hann aetti bara kok a vel og vid sogdum "NEI TAKK" og forum. Oll thessi fyrirhofn, allt thetta vesen, allt thetta leynimakk og vid fengum ekkert kok. Sneyptir komum vid tomhentir a hotelid og dyravordurinn spurdi hvert vid hofdum farid svo seint ad kveldi. Vid sogdum honum solarsoguna og hann hlo datt og sotti tvaer kokfloskur fyrir okkur. Tha var barasta haegt ad kaupa kok i andyrinu.

12.apríl 2006

Vid fljugum i dag og lendum i gaer..

Nyja Sjaland var otrulega fallegt! Likist Islandi minna en madur hefur heyrt, sumsstadar er thad mjog likt Islandinu en annarsstadar er thad mjog olikt. Vid gerdum ymislegt skemmtilegt! Vid teljum okkur til daemis vera aegilega trukkara eftir ferdina. Nuna stodd a flugvellinum i Aukland i Nyja Sjalandi, a leidinni til Cook eyja. Tho svo ad vid fljugum i dag tha lendum vid i gaer. Skritid ad hugsa til thess.. Vid fljugum semsagt yfir daglinuna. Vid aetlum ad sleikja solina og slappa duglega af a Cook eyjum og vera thar i fjorar naetur og fjora daga. Eftir thad verdur slappad adeins meira af a strondinni a Tahiti og menningin skodud og thad verdur vaentanlega otrulega notalegt og gott. Svo taka vid elskulegu Bandarikin (thar sem Emmaljunga vagn og fullt af skom verda keypt muhaha).

Vid attudum okkur a thvi adan ad vid erum buin ad vera a thvaelingi i tvo manudi nuna og eigum bara einn manud eftir (eg og Fridgeir - Gunni a ennda fjora eftir). Thetta er buid ad vera otrulega fljott ad lida!!!

Jaeja, vid thurfum ad fara og fa okkur eitthvad gott i gogginn og svo i enn eitt flugid! Knus og kossar til allra heima =)

9.apríl 2006

Nýja Sjáland

Kiwi

Agalega sætur Kiwifugl

Við erum komin til Nýja Sjálands eftir ansi mergjaða Ástralíudvöl.
 
Við þurftum að skilja Nero litla eftir á dýraspítala og gefa hann til ættleiðingar svo hann hafi það gott í Ástralíunni því við máttum ekki taka hann með. Þegar við lentum í Nýja Sjálandi fórum við í það verkefni að finna okkur bílaleigubíl. Við hringdum endlaust mörg símtöl og allt kom fyrir ekki. Við fengum ekki campervan og ekki heldur lítinn og krúttlegan fólksbíl á viðráðanlegu verði. Við vorum við það að gefast upp á leitinni og ég ákvað að hringja eitt símtal að lokum og viti menn - sá sem svaraði átti akkúrat bílinn fyrir okkur! Hann átti til Sleepervan sem er svipaður og L300 sem er hægt að breyta í rúm afturí. Hann þurfti að láta flytja hann fyrir sig frá Christchurch til Aukland og þess vegna fengum við hann á dúndurgóðu verði. Hann gat ekki látið okkur fá hann fyrr en daginn eftir þannig að við ákváðum að finna okkur ódýrt hostel til að gista á þessa nóttina og leggja svo land undir fót í morgunsárið. Við hittum tvær spænskar stelpur og einn nýsjálenskan strák sem voru líka að leita að ódýrri gistingu og ákváðum að leigja öll saman sex manna dorm. Það var ótrúlega fínt og ódýrt. Daginn eftir vöknuðum við galvösk klukkan níu til að hitta Sleepervan-gaurinn og fórum niður í afgreiðslu og þar var enginn. Eftir smá stund áttuðum við okkur á því að við höfðum klikkað ærlega og gleymt að stilla klukkuna á Nýsjálenskan tíma og vorum ennþá á Áströlskum tíma. Klukkan var semsagt tíu en ekki níu en eftir smá vesen náðum við í skottið á Sleepervan-gaurnum og hann kom aftur og hitti okkur. Hann sagði okkur að hann hafi leigt öðru fólki bílinn okkar og við vorum að sjálfsögðu ekki beint sátt með hans frammistöðu. Hann varð voða sorry yfir þessu og hringdi og hringdi á meðan við pökkuðum niður og checkuðum okkur út af hostelinu. Þegar við komum aftur niður þá var gaurinn búinn að finna fyrir okkur nýjan bíl sem þurfti að flytja yfir til Aukland og við gátum fengið hann á sama verði af því hann hafði svikið okkur. Við vorum bara fegin að komast af stað og fórum með honum yfir á aðra bílaleigu. Þar beið okkar þessi líka RISA húsbíll! Þetta er rosa tryllitæki og það að keyra hann er sami fílíngur og að keyra vörubíl. Við erum með tvær setustofur í fína sjö metra húsbílnum okkar og það fer vægast sagt vel um okkur. Við vorum semsagt alveg sátt með að skipta út L300 bílnum fyrir geggjaða húsbílinn okkar og fá hann á þrusugóðu verði (ódýrari en þriggja dyra Nissan sem við vorum að hugsa um að taka.) Við lögðum enn eina ferðina upp í Roadtrip og í þetta skiptið á þrusuflottum vörubílahúsbíl. Við byrjuðum á því að keyra í Willowbank Wildlife garð í Christchurch og sáum hinn fræga Kiwifugl og fullt af fallegum og framandi dýrum. Eftir það brunuðum við til Hamner Springs (sem átti að vera svipað og íslenska Bláa Lónið) og fórum í lónin þar og slöppuðum duglega af. Við vorum reyndar sammála um að Bláa Lónið sé meira fancy. Við keyrðum svo aðeins áfram og fórum að sofa í fína lúxustrukknum. Morguninn eftir var dagurinn sko tekinn snemma (og við klikkuðum sko ekkert á tímanum í þetta skiptið) og risum úr rekkju kl.5:00! (Ótrúlegt en satt!) Við vorum búin að fá okkur morgunmat og komin í flotgalla fyrir klukkan 5:30, meira að segja áður en sólin kom upp! Við vorum semsagt á leiðinni út á sjó til að synda með höfrungunum. Við sigldum í dágóða stund og settum á okku snorkle-pípuna og fínu köfunargleraugun og fórum í blöðkurnar og biðum eftir að skella okkur í sjóinn og sjá höfrungana. Við fórum nokkrar bunur í sjóinn (sem var ó svo kaldur) og syntum með höfrungunum og skoðuðum þá gaumgæfilega! Þeir voru alveg agalega sætir og skemmtilegir! Syntu í kringum okkur og hoppuðu og voru æðislegir. Eftir það tókum við heita og góða sturtu og kúrðum aðeins í húsbílnum og fengum okkur svo dýrindis hádegismat ala Fritz. Við keyrðum svo eitthvað áfram eftir nokkrar spilaumferðir í rommý og borðuðum dýrindis mat og fórum snemma í háttinn. Daginn eftir (semsagt í gær) fórum við svo á fætur og komum okkur on the road again og keyrðum þangað sem ferjan á milli suður og norðueyjunnar fór. Við fórum í ferjuna og sáum yndislega fallega landslagið frá sjónum. Svo var haldið áfram keyslu og skoðað meira af fallega Nýja Sjálandi. Strákarnir skelltu sér svo í Woolworths (risa-Bónusbúð) og keyptu og elduðu þessa líka dýrindis máltíð nammi namm. Það var ööönaðslegur kjúllaréttur í forrrétt og piparmyntuís, ávextir og harnandi íssósa í eftirrétt. Við vorum öll svo södd að við þurftum að leggjast niður til að jafna okkur eftir þennan geggjaða mat. Í dag erum við svo búin að keyra örlítið og skoða meira. Stefnan núna er að leggja aftur í hann (eftir mat ala Gunni) og skoða the forgotten world highway og fleira fallegt í fallega Nýja Sjálandinu.
Knús og kossar frá heimsreisuförunum!

1.apríl 2006

Minnsti heimsreisufarinn

Krili

Vid forum i sonar og fengum ad sja litla fallega krilid okkar! Vid fengum ad vita ad krilid er heilbrigt og erum alsael :)

31.mars 2006

Astralia er stor

Vid erum buin ad vera ad keyra eins og vitleysingar um alla Astraliu, vid latum ekki vegspotta liggja eftir okeyrdan og ekki steinvolu oskodada. I fyrradag vorum vid svo a leid inn ad Flinder Ranges fyrir ofan Adelaide. A leidinni inneftir i thjodgardinn tokst okkur ad taka vitlausa beygju og vorum buin ad keyra nakvaemlega 69 km thegar vid komum ad skilti sem sagdi 20 km til Pinchina og 69 til Hawker og tha attudum vid okkur a thvi ad vid hofdum keyrt vitlausan afleggjara og urdum ad snua vid. Vid hofdum semsagt keyrt ofugu megin vid fjallgardinn. Vid vorum eitthvad ad lata okkur dreyma um ad taka naesta sloda sem la i attina ad fjallgardinum og lenda i sma aevintyri en akvadum ad vera ekki ad leggja thad a okkur og keyrdum tilbaka til Hawker og fundum retta afleggjarann. Fint ad baeta auka 138 km a kortid. Vid keyrdum sem leid la inn til Flinders og skodudum landslagid sem er aegifagurt og hina gulfaettu Wallabie (likist kenguru) sem er fjolmenn a svaedinu. Vid kiktum i bush-walk (gaungutur i obyggdum) og skodudum 5000 ara gomul hellamalverk.
 
Thegar ad kveldi leid keyrdum vid svakalega flotta leid upp a fjallgardinn og lengst inn i obyggdir. Vegurinn var ekkert til ad hropa hurra yfir, en okkur la svosem ekki a og nutum utsynisins (nema Anna Sigga sem var ekki hrifin af haedinni fram af brununnum). Vid akvadum svo thegar tok ad rokkva ad stoppa og elda okkur mat og grilludum thessi finu kjuklingaspjot. Alvoru karlmenn grilla i obyggdunum thannig ad vid kipptum ut einnota grillinu og firudum upp i kvikindinu. Eftir ljufenga maltid sem hefdi satt atta manns akvadum vid ad thetta vaeri ekki rettistadurinn til ad gista a og akvadum ad rulla restina af hringnum og keyra nidur ad upplysingaskalanum og aftur ut ur thjodgardinum.
 
Eftir 3 tima akstur i kolnidamyrkri, myrkri svo svortu og thykku ad saltadri sild hefdi lidid vel thar, attudum vid okkur a thvi ad vid vorum tynd, gjorsamlega tynd. Thad var ekki nokkur leid ad finna a korti hvar vid vorum stodd og vegmerkingar af skornum skammti, svona eins og kalt kok i Sahara. Ekki var thetta tho algjorlega yfirgefinn vegur thvi skyndilega skreid lofastor kongulo inn a veginn i veg fyrir kamperinn. Vid Gunni thustum ut til ad taka myndir og skoda en Anna Sigga sat sem fastast og naut utsynisins ur farthegasaetinu gegnum hnausthykka framruduna.
 
Thegar vid svo loksins eftir langa maedu saum malbik aftur, saum vid blasa vid okkur eins og lelegur brandari, skiltid sem hafdi fengid okkur til ad snua vid fyrr um daginn. Vid hofdum i myrkrinu um nottina beygt vitlaust alveg eins og fyrr um daginn og i thetta skipti endad upp a fjallgardinum sem vid hofdum gaelt vid ad laumast yfir en ekki viljad leggja i. Vid vorum stodd AFTUR 69 km fra Hawker i vitlausa att. Heppin.

25.mars 2006

Road-trip!

KENGURA

 Bali var róleg og góð og við náðum að slappa duglega af. Við ákváðum að skreppa í 3ja skiptið til Singapore af því við vorum þar í nágrenninu og millilentum semsagt þar áður en förinni var haldið til Sydney Australia! Við fundum okkur þetta fína hostel þar sem herbergið var 3fm og með þessum fínu kojum - við borguðum fyrir það litlar 3500 íslenskar krónur! Þar plönuðum við Ástralíuævintýrið og komumst að þeirri niðurstöðu að þessir 10 dagar sem við vorum búin að áætla hér var enganvegin nóg. Við verðum sumsé í roadtrippi um sveitir og borgir Ástralíu í 2 vikur. Við leigðum okkur húsbíl (þveröfugan - með stýrið vitlausu megin og rúðupissið þar sem stefnuljósið á að vera!) og fórum í Bónus og keyptum troooooðfulla risastóra búðarkerru af gumsi til að lifa vel af næstu vikur. Fyrsta daginn keyrðum við út úr Sydney og sem leið lá upp til Blue Mountains. Við skoðuðum þar útsýnið og eftir það keyrðum við svo til Canberra og gistum í sveitinni rétt fyrir utan borgina. Daginn eftir skoðuðum við Canberra (sem er höfuðborgin) og skoðuðum höllina og fleira skemmtilegt og vorum on the road again. Leiðin lá til Melbourne þar sem Neighbours búa! :) Ramsey street verður semsagt skoðað eftir þessa færslu enda erum við staðsett í hjarta Melbourne í þessum töluðu orðum. Næstu skref verða að fara eitthvað í áttina að Adelaide og svo inn í eyðimörkina til Alice Springs þar sem Ayers Rock (sem er stærsti steinn í heimi). Við vorum að horfa á elskulegu Silvíu Nótt þar sem hún gjörsamlega fer á kostum og Anna Sigga og Friðgeir eru alveg endalaust spennt að sjá hana sigra heiminn í maí! :) Við erum með einn laumufarþega með í för, lítinn ketling sem við fundum og björguðum. Hann var bara um viku gamall þegar við rákumst á hann og mamman var hvergi nærri. Hann heitir Nero og er búinn að fá sjónina núna og stækka alveg fullt því við gefum honum alltaf úr pela svo hann verði stór og sterkur (eins og kókómjólkurklói)! Þetta kort er af svipaðri leið og við erum að hugsa um að fara nema akkúrat í öfuga átt (allt er öfugt í Ástralíu) http://www.on-the-road.ch/Country/Australia/Map-Australia.gif. Vegalengdirnar eru gríðarlegar og til að fá smá skilning á vegalengdunum hér þá er Ástralía 75x stærra en litla Ísland! Við erum nú þegar búin að keyra 1200km og aðeins er búið pínulítið brot af ferðalaginu. Það verður eitthvað minna um færslur hér inn á næstu dögum því við erum on the road og hugsanlega stödd út í miðri eyðimörk með kengúrunum þegar þú lest þetta. Við erum akkúrat hinummegin á hnettinum! :) knús og kossar og klór, Gunnar, Friðgeir, Anna Sigga, bumbubúinn og Nero kókómjólkurklói!

17.mars 2006

Brimbrettakappinn ég

Ókey, við Gunni ákváðum að það væri geggjuð hugmynd að fara á brimbretti og það er geggjað

Kuta Beach

Kuta ströndin á Bali

að vera á brimbretti og báðar sekúndurnar sem ég stóð voru snilld, vissulega stóð Gunni í næstum hálfa mínútu og reið öldunni næstum upp í fjöru, en ég skemmti mér konunglega liggjandi á brettinu eða veltandi um í briminu milli þess sem ég reyndi að standa á brettinu. En svo fór að fjara út og við erum að tala um að við vorum komnir lengst út til að ná í virkilega stóru öldurnar, við erum að tala um öldur á hæð við skaflana sem lögðust upp að húsinu hjá Afa Friðgeiri hérna um árið og voru þjóðnýttir í virkis og gangnagerð, svoleiðis öldur fleygja manni til og frá eins og músarindli í AEG þvottavél. Það er ekki sérstaklega auðvelt að koma sér í land þegar það fjarar út hérna, nú er ég enginn sjávarfallafræðingur en ströndin breikkar um næstum 100 metra í fjöru og mér finnst það mikið. Þegar við komumst loksins í land var maður farinn að finna til í húðinni. Við

Surfer

Jeee... brimbretti rokka.

ákváðum að þetta væri gott af sól þennan daginn og fórum af ströndinni. Núna þremur dögum seinna og 4 lítrum af allskonar smyrslum síðar er ég ennþá með blöðrur á öxlunum. Rauður eins og karfi daginn eftir fórum við Anna Sigga að leita að skyrtu handa mér, einhverri lausri og léttri sem ég gæti notað til að skýla öxlunum. Við gengum búð úr búð og allir héldu að við værum að segja "shorts" en ekki "shirt" og á endanum benti ég á skyrtuna sem einn búðareigandinn var í og sagði "like this, a shirt like this" hann dró okkur aftast í búðina og benti á boli sem hengu upp á vegg. Við gáfumst upp en þegar við vorum komin út reyndi gaurinn að selja mér skyrtuna sem hann var í sjálfur,

Hawaii

Hawaii skyrtur rokka líka

fór úr að ofan og sagði "ok, how much you give me!" Greinilegt að það er ekki mikið um að vera hjá þessu fólki. Á endanum keypti ég mér þessa líka glæsilegu Hawaí skyrtu sem Anna Sigga 

hreinlega elskar.

P.s. svo mikla lukku vakti þessi Hawaii skyrta að Gunni verzlaði sér eina líka, kyrrahafseyjur here we come.

17.mars 2006

Kuala Lumpur

 

Petronas

Petronas - Tvíburaturnarnir

Það var minni upplifun að koma til Kuala Lumpur eftir að hafa komið til Singapore. Borgirnar eru um margt líkar með öll þessi háhýsi en Kuala Lumpur er öðruvísi en Singapore að því leyti að á milli háhýsanna og bak við gljápússuðu glerveggina leynast kofar sem ekki væru boðlegir sem útihús á íslandi (og mun verra innréttaðir). Menningin er líka öðruvísi, að vera í Singapore er eins og að rölta í gegnum miðbæinn í hádeginu, ekkert nema viðskiptaplebbar í jakkafötum og maður finnur fyrir þessu allsstaðar (sérstaklega í verðlaginu), en í Kuala Lumpur er allt mikið afslappaðara einhvern vegin, jafnvel þó að Formúla 1

væri á næstu grösum. Við gistum í China Town við hliðina á útimarkaðinum og tókst með sóma að halda okkur frá gylliboðunum um að fylla ferðatöskurnar fyrir klink (meira klink en í kína en klink engu að síður).

Við tókum hinn venjulega túristarúnt, löbbuðum einhver ósköp og fórum upp að Petrona

Sepang

Sepang í Kuala Lumpur

turnunum sem skaga 452 metra upp í loftið fyrir ofan mann. Fengum okkur að borða og komum aftur til að sjá þá í næturmyrkrinu upplýsta!! Þvílík sjón. Allt í Kuala Lumpur snérist um F1 og voru útstillingar með F1 bílunum út um allt, á

veitingastöðum og inni í Petrona turnunum. Einnig sáum við Menara Telkom turninn sem er víst hannaður með bambussprota í huga og líka Maybank bygginguna sem er hannaður af sama arkitekt og Menara. Í miðri Kuala Lumpur er hæð og á henni er turn sem veitir magnað útsýni yfir KL. Við fórum þangað upp og lékum

Menara

Menara Telekom turninn

túrista, reyndum að taka myndir gegnum gluggana og hlustuðum á "audio-guide" um KL.

Gaurarnir á útimarkaðinum í China Town voru lítið hrifnir af hæfileikum Önnu Siggu til að fá verðið niður í botn. Við vildum versla okkur DVD diska svo við höfðum eitthvað til að horfa á þegar og ef kemur að því að við viljum bara liggja inná hóteli Fyrsti gaurinn bauð 20 Ringitt (400 ísl) við komum honum niður í 15 fyrir diskinn og þegar við reyndum að pína hann meira niður þá heimtaði hann að kaupa DVD af okkur á því verði sem við buðum honum. Það kom svo í ljós að þetta virðist vera almennur háttur á þegar hvítt fólk prúttar, að heimta að kaupa Adidas skó af manni ef maður er tregur til að borga meira en 1000 krónur fyrir parið. Næsti DVD gaur var mun sanngjarnari og bauð diskana á 10 ringitt (samt 2falt meira en í Kína) Anna Sigga píndi hann niður í 6 og við ákváðum að kaupa Flightplan af honum (hafðu það Þossi), á meðan hann var að sækja diskinn (einhvert) þá undirbauð gaurinn á næsta borði hann, og þegar upphaflegi gaurinn kom til baka varð hann brjálaður við gauragaurinn sem hafði undirboðið hann. En okkur var svosem slétt sama og vorum sátt við að kaupa DVD á 5 ringitt af gaurnum sem stakk undan vini sínum viðskipti (120 íkr).

Þetta var meira og minna Kuala Lumpur, nema að sjálfsögðu að hraðbankar loka klukkan 12 (eða fyrr) og Gunni hljóp marathon til að reyna að finna einn sem var opinn eða í lagi til að eiga efni á þó ekki væri nema einum bjór yfir Liverpool-arsenal leiknum, í sem fæstum orðum þá tókst það ekki enda eins gott enda ÖMURLEGUR LEIKUR.

12.mars 2006

Við erum ástfangin.. af Singapore

Singapore

Singapore 
Sannkölluð stórborg

Við komum til Singapore seint um kvöld allslaus og önug. Við duttum inn á þetta fína gluggalausa hótel með loftræstingu sem lét okkur alltaf fá á tilfinninguna að úti væri íslenskt óveður og ófært í skólann. Eftir stuttan og léttan 12 tíma svefn skriðum við út (einhverntíma eftir hádegi) og fálmuðum eftir einhverju ætilegu og nýjum buxum á Önnu Siggu bumbulínu. Eina sem kom út úr þeirri ferð var að við enduðum úti á eyju stutt fyrir utan Singapore í sjónum í öllum fötunum. Þar var slappað duglega af og drukkinn bjór í sólinni. Við rölltum um eyjuna Sentosa og sáum þessa fínu skíðabraut fyrir kassabíla (svipað og go kart nema vélarlausir og runnu niður brekku) og ætluðum aldeilis að gera okkur dagamun og skella okkur í bílana. Friðgeir spurði hvort óléttar stelpur mættu ekki renna sér í þessu enda um saklausa bílabraut að ræða á íslenskum mælikvarða. Strákurinn tók aldeilis kipp og sagði NEI engar óléttar stelpur hér og hreinlega lokaði brautinni. Við komumst semsagt ekki í skíðabílana. Eftir þessi einkennilegu viðbrögð og vonbrigði rúntuðum við um eyjuna og tókum eina vitlausa beyju inn á bannað svæði (úps!!!) og komum inn í agalega flottan skóg og fundum þar ÓGEÐSLEGA kónguló sem strákarnir potuðu í (búkurinn var ekki nema svona 5cm). Eftir að Anna Sigga var búin að öskra frá sér vit og rænu og hræða í burtu alla aðra túrista af eyjunni rölltum við áfram. Við fundum yfirgefið þorp sem var alveg geggjað og gengum þar í gegn . Við klömbruðumst yfir hálfbrunna og hálfhrunda brú sem marraði í þegar maður gekk yfir og önnur hver sperra var ekki lengur til staðar. Þegar við komumst yfir brúna stálumst við inn í einhvern garð þar sem endalaust margir (2000-3000 manns) sátu og biðu eftir einhverju sem við ákváðum að væri magnað og settumst
Sentosa

Sólsetur á Sentosa

niður. Við komumst fljótlega að því að það sem allir biðu eftir var ansi magnað og var lasershow sem kastað var á gosbrunni og vatnsúða. Alveg hreint magnað í alla staði! Eftir það fórum við í Carlsbergturninn á eyjunni (í 133 metra hæð) og sáum yfir gjörvalla Singapore og Sentosa. Það var alveg geggjað! Daginn eftir tókum við útsýnistúra um borgina og svo bátsferð seinnipartinn. Okkur þótti þessi fallega borg í dýrari kantinum og töldum okkur hafa séð aldeilis nóg og ákváðum að gáfulegast í stöðunni væri að halda áfram för okkar og koma okkur áfram á næsta áfangastað. Það var reyndar erfitt að skilja við þessa fallegu og hreinu borg og ætlum öll að koma þangað aftur við fyrsta tækifæri.
 
Við erum öll farin að sakna Robbie OKEY sem keyrði okkur um Indland. Við söknum túrbanmannsins minna sem keyrði okkur til Amritsar í Indlandi. Hann hafði orðaforða í ensku sem samanstóð af ALSO og YES og AS YOU LIKE. Þetta endurtók hann aftur og aftur, gjörsamlega úr samhengi og alveg sama hver spurningin var.  Og náttúrulega söknum við mest ykkar allra að heiman.

10.mars 2006

Erum við ekkert að grennast

Eftir mikla leit eftir einhverju ætilegu í Lhasa fundum við stað með enskum matseðli sem var ekki lokaður sökum nýja ársins, Good Wood Café.  Þó að timbrið hafi eflaust verið ágætt þá var skilningur á ensku hjá starfsliðinu upp og ofan.  Með herkjum tókst okkur að pannta okkur bananasplitt og þegar það kom þá voru þau búin að tjalda öllu til og setja tómata yfir ísin.

Hvað er það!!!!!!

Anna Sigga smakkaði eitt kissuberið (tómat) og tilkynnti hátt og snjallt að þetta vær það viðbjóðlegasta kissuber sem hún hefði á ævinni smakkað. 

10.mars 2006

Catching up!

Hæ hó við erum á lífi eftir allt saman.  Búið að vera mikið ferðalag á okkur undanfarið og við ekki komist mikið á netið.    Frá því í að við létum vita af okkur síðast þá erum við búin að ferðast yfir Himalaya fjöllin fra Katmanthu i Nepal til Lhasa i Tibet.  Þaðan fórum við svo til Chengdu i kina og svo þaðan í beinu flugi til Singapore.
 
Ferðin milli Nepal og Tibet var nú svaka upplifun í marga staði.  Fyrsta stopp var á landamærum Nepal og Tibet þar sem þeir Tibet menn voru eitthvað voðalega tregir við að hleypa okkur yfir landamærin þar sem við vorum ekki með stimpil um það að við höfðum stigið fæti inn í indland.  Svo virðist vera að indland sé svo skítugt að kínverjar vilja ekki einu sinni sjá fólk þaðan. 
Það var svo sem allt í lagi þar sem við lenntum í áramótafögnuði þeirra tibetmanna í þessum landamærabæ sem byggður í fjallshlíð.  Borðuðum þarna og drukkum nokkra bjóra fram eftir kvöldi.  Gunni fór svo eftir það á áramóta diskó þarna og fékk meðal annars danskennslu í öllum nýjustu Tibet dönsunum þarna af tveimur tíbeskum yngismærum.
 
Daginn eftir keyrðum við svo yfir fjöllin og gistum eina nótt í pínu litlu þorpi þarna uppi í 4000
Everest

Mount Eversest - Been There

þúsund metra hæð.  Sú upplifun var alveg svakaleg í alla staði.  Svona fyrir utan það að við vorum öll með þvílíkt kvef og haus verk út af hæðinni þá var maturinn algjörlega óætur þarna.  Svo gistum við í óupphituðu húsi þarna í 10 stiga frosti og þurfti 2 buxur, 2 sokka pör, bol, flíspeysu, vettlinga, 2 teppi og sæng á línuna til að lifa nóttina af með herkjum. 
 
Næsti dagur tók við og var lagt eldsnemma af stað (10:30) eftir aðeins 16 tíma legu í köldu rúmi.  Vegir Tíbets eru óransakanlegir sökum endalausra ójafna, vegaviðgerðum og þeirr staðreynd að vegurinn er allur í heild sinni á algjöru byrjunarstigi fyrir utan brýrnar (sem hleypa leysingar vatni undir veginn ) á 500 metra fresti sem eru tilbúnar og þar að leiðandi standa þær hálfum metri hærra en vegurinn og virka sem hinar svakalegustu hraðahindranir.  Hendið inn í jöfnununa bílstjóra sem liggur á að komast á fyllerí ( sökum nýja ársins ) og úr verður ein mesti hossingur sem um getur.
 
Potala

Potala Palace - Lhasa í Tibet

Eftir nótt í frystiklefa og dag í málningarhristitæki var ákveðið að ljúka þessu af og keyra beinustu leið til Lhasa á einum degi. Lhasa er stórborg á Tíbískum mælikvarða ( 70.000 hræður ).  Þar skoðuðum við allt það helsta en slepptum að labba 3600 tröppur upp að Potala höllinni.  Höllin var samt skoðuð ásamt musterum, útimörkuðum og öðru sem prýðir stórborg á hjara veraldar.
 
Næsta stopp var svo Chengdu í kína.  Þar klikkaði að fá kínverskt vísa og höfðum við áhyggjur af því á meðan dvöl okkar í kína stóð.  Vorum þarna bara í 2 nætur og var þetta meira svona hugsað til að hlaða batteríin fyrir komandi átök.  Anna Sigga var búinn að láta sér dreyma um Peking önd frá fyrsta degi og fengum við leiðbeiningar á gistiheimilinu um stað sem átti að selja herlegheitin.  Seinustu tvær vikur höfðu farið í að byggja upp gríðalega spennu, vonir og drauma hja Friðgeiri og Gunna.  Og var matarlyst og eftir vænting í hámarki þar sem við vorum ekki búnir að fá neitt að borða af viti í Tibet ( allir veitingarstaðir lokaðir sökum nýjarsfyllerís ) og eina sem í boði var var Jakuxakjöt eldað á miljón vegu ( Yak Choumain, Yak Fried Rice, Yak Pancake, Yak on a bread, Yak Soda... ).  Þegar á hólm var komið kom í ljós að allar hugsanlegar uppskriftir að önd voru nýttar á þessum veitingarstað nema nákvæmlega það sem okkur þyrsti í.  Sársvekkt og vonsvikin gengum við út af þessum stað og mældum göturnar.  Þegar hungrið að því komið að
Panda björn

Panda Björn

yfirbjóða okkur og ScatDonalds var farin að virka spennandi náði Anna Sigga sambandi við unga afgreiðsludömu ( það talar enginn ensku þarna og látbragðsleikur var ekki að skila árangri ) sem sendi okkur neðar í götuna þar sem við blasti skilti sem á stóð.  Peking Duck Resturant.  Önnu Siggu til ómældrar gleði.  Það er skemmst frá því að segja að þarna var borðað 2 kvöld í röð.  Það helsta sem er að sjá í Chengdu er Pöndu rannsóknarstöð og að sjálfssögðu kíktum við þangað.  Vorum svo heit eftir það að við ákáðum að kíkja líka í dýragarðinn. Þegar leið að brottför fóru áhyggjur af kína-visa-leysi að segja til sín en viti menn, kínverjum var slett sama þó við værum vísa-laus ( og vita laglaus ) og voru ánægðir með að senda okkur til Singapore.
 
 
Kveðja
Gunni, Anna Sigga og Friðgeir.

27.febrúar 2006

Hávaði í Indlandi

Taxarnir í Mumbai

Beygluhrúga í Mumbai

Mikið svakalega er skrýtið að ferðast í umferðinni hérna. Enginn er með spegla og engu virðist skipta máli hvar á veginum (eða af veginum) er keyrt. Þeir liggja líka mikið á flautunni oft að því er virðist að ástæðulausu. Mig er farið að gruna að þetta sé til þess að búa til nokkurskonar súpu af hljóðum þannig að speglar verða í raun og veru tilgangslausir. Rétt eins og í góðum bíósölum þá skynjar maður að vondi kallinn er fyrir aftan mann því hljóðkerfið gefur hljóð í hægra horni bíósalarins. Hérna þá skynjar maður hvar bílarnir eru í umhverfinu, mismunandi styrkur hljóðsins gefur til kynna fjarlægðina í næsta bíl og hvaðan hljóðið berst gefur til kynna úr hvaða átt bíllinn er að koma. Mismunandi væl úr flautunum gera svo kleift að greina á milli bíla í þessu hafi af óhljóðum.

 

27.febrúar 2006

Nepal er staðurinn

Taj Mahal

Taj Mahal - Indland

Jæja þá erum við komin til Nepal. Í gær fórum við til Agra til að skoða Taj Mahal.  Ég og Friðgeir vöknuðum snemma til að fara og fá nýjan bílstjóra þar sem hinn var ekki alveg að gera sig. 
Nóttin í agra endaði ekki betur en það að það var gerð loftárás á okkur af einhverjum flugum í svefni, trúlega moskito.  Ég kom held ég verst út úr því þar sem það er svo heitt og erfitt að halda sænginni ofaná sér.  við erum að tala um að bakið á manni er eins og að maður sé með hlaupabóluna :S. 

Svo vöknuðum við snemma í morgun og fórum í flug til Nepal.  Morgun dagurinn fer svo í að fá visa inn í Kína og svo förum við í nokkura daga ferð upp í Tibet. 


 

24.febrúar 2006

Ferdalag um indland

Hedan ur Indlandi er allt gott ad fretta. Vid vorum ad koma aftur til Delhi eftir  rosa ferdalag. Vid forum i skodunarferd um Delhi i fyrradag og eftir dat logdum vid upp i langferd til Amritsar. Vid komum thangad um midnaetti og forum beint i hattinn. Eftir godan naetursvefn skodudum vid svo Amritsar og thar stod Gyllta hofid uppur. Thangad fer folk til ad oska ser thvi thar eiga allar oskir ad raetast. Vid forum svo sem leid la ut a landamaeri Indlands og Pakistan til ad horfa a "the changing of the guards" sem er i augum Indverja afskaplega falleg athofn. Vid vissum ekki alveg hverju vid attum ad vonast eftir en bjuggumst amk alls ekki vid staerri ahorfendapollum en a laugardalsvellinum. Thar rodudu Indverjar ser upp og hinum megin vid landamaerin var svipad magn af Pakistonum. Folksfjoldinn var gridarlegur tho svo thetta gerist a hverjum degi. Folkid kalladi vid elskum Indland og hinum megin kalladi thad vid elskum pakistan og allt gekk uta ad garga haerra en hinir og yfirgnaefa. Okkur fannst thetta ekki jafn merkilegt og theim en samt gaman ad sja hvad mugaesingurinn er mikill. Vid keyrdum svo til Chandigar og gistum thar a frekar lelegu og mjog dyru hoteli thvi thad var thad eina sem laust var. Vid voknudum svo og skodudum borgina sem er thekkt fyrir arkitektaverk lecorbusier. Vid keyrdum svo bara aftur til Delhi og erum ad fara ad sofa :) Vid settum inn nokkrar myndir og commentakerfid fer vonandi ad hressast :) Vid erum buin ad lenda i morgum aevintyrum. Til daemis lentum vid i nettum arekstri en erum heil af hufi og ekkert meidd. Vid erum buin ad skemmta okkur mjog vel! Vid erum ad fara til Agra a morgun ad skoda Taj Mahal og svo fljugum vid til Kathmandu daginn eftir thad. Knus og kossar til allra heima :)

24.febrúar 2006

Myndir

Jaeja tha eru loksins komnar nokkrar myndir inn.  Thetta eru allt myndir fra mumbai.  Reynum svo ad  henda inn nokkrum fleiri a naestu dogum.

Komment og spjallkerfid fer alveg ad detta i gang.

21.febrúar 2006

Raftaekjamarkadur

Okkur langadi ad versla okkur iPod til ad geta hlustad a tonlist thegar okkur fer ad leidast rausid i hvort odru og badum einn svona Autorigshaw gaur ('imyndid ykkur badkar med hurdum, solhlif, 3 hjolum og motorhjolastyri) ad skutla okkur i "MALL" til ad kaupa "ELECTRONICS" gaurinn h'elt nu ad thad vaeri litid mal og brunadi af stad. Thegar hann svo stoppar erum vid fyrir utan throngt skuggasund og gaurinn heimtar ad vid forum thangad inn. Vid letum til leidast og thegar vid vorum komin inn fyrir skuggasundid opnast thetta lika risaport og hvert sem augad eygdi voru notadir gsm simar,  hingad enda semsagt allir stolnu simarnir fra vesturevropu. inn af portinu voru svo milljon (vid toldum thaer) smabudir sem seldu raftaeki. Thegar vid segjum smabudir tha meinum vid SMA budir upp a 6 fm, hindrar tha samt ekki i ad vinna 4-5 tharna i einu (thetta er ekki skot a hvad their eru litlir) (their eru samt litlir). Eg endadi semsagt a thvi ad versla mer Polo bol og iPod Video og get thvi hlustad a Johnny Cash. It burns burns burns the ring of fire...

21.febrúar 2006

Ein stutt

Thessi verdur stutt, erum stodd i Delhi sem er mjog odruvisi en Mumbai. Mikid meira af turistum og folk almennt okurteisara. Thad er greinilegt ad thad er vanara ad hafa pening af turistum her, thvi vidmotid er olikt leidinlegra, gaurinn i andyrinu a "hotelinu" okkar skammadi okkur fyrir ad kaupa ekki Delhi sightseeing tour af honum. Hann var bara mjooog full og spurdi afhverju, afhverju i sifellu. A hinn boginn er allt mun odyrara her en i Mumbai, ekki ad eg helt ad thad gaeti gerst en svona er thad. Vid hofum verid ad borga milli 14 og 21 kronu fyrir leigubil og thad er liklegast bara vegna thess ad islenska verdskynid okkar leyfir okkur ekki ad prutta um thessar orfau kronur tharna a milli. Okkur finnst stodugt verid ad svindla a okkur. Til daemis var okkur bodid Elephant ride (allt i einu stod bara fill a midjum "Laugaveginum") fyrst segir strakurinn, ride for 2 rupees, svo skammadist pabbinn i honum og verdid breyttist i 100 rupees.

Nog i bili, best ad sja meira.

19.febrúar 2006

Mumbai

Vid attum godan dag i London. Flugid med Flugleidum var allt i lagi en fra London til Mumbai var flugid frekar slappt og Gunni svaf dat af ser. Thegar vid lentum fengum vid nett sjokk thegar vid saum nokkra Indveja hangandi utan a flugstodvarbyggingunni i bambusramma sem haldid var uppi af tveim Indverjum sem satu a thakinu. A Islandi hefdi sko verid splaest i randyra stillasa! Hotelid okkar var rosalega fint, reyndar inni i mjog vafasomu hverfi en flest hverfi her eru mjog vafasom. Maltidirnar hja okkur hafa verid i Argentinuklasa (rosa flottur matur a rosa finum veitingastodum) og er medalverd fyrir okkur thrju er i kringum thusundkallinn med vini og dyru gosi. Umferdamenningin er alveg mognud. Thad virdast ekki vera neinar reglur i gildi nema flautan og thad vantar algjorlega akreinar. Bilar trodast bara thar sem er plass (eda ekki plass) og i gaer lentum vid til daemis i sma nuddi og enginn kippti ser upp vid thad. Thad er folk allstadar og rosalega mikil fataekt. Folk sefur uppi a bilum, auglysingaskiltum, gangstettinni og allstadar thar sem thumlungur er laus. Vid erum buin ad vera dugleg i ad skoda okkur um og forum til daemis i gaer ut i Elephanta Caves sem er eyja klukkutima fyrir utan borgina. Thar eru hellar og musteri sem hoggin eru inn i klettana og eru thau a milli 1000 og 2000 ara gomul. Vid forum i ferd um borgina og skodudum helstu kennileyti og medal annars The Tower of Silence sem er turn thar sem Parsi folkid (rikir muslimar) hengja likin utan a turn og bida eftir ad hraegammar komi og rifi thau i sig og svo eru beinin sett inn i turninn thegar besti bitinn er farinn. Her er mjog odyrt og vid erum hrikalega satt med verdid en erum samt viss um ad vid erum ad borga yfirverd. Her kostar til daemis allur pakkinn med gledikonu jafn mikid og tyggjopakki a Islandi en vid hofum samt ekki latid reyna a thad og eflaust er haegt ad prutta thad verd nidur threfallt eins og allt annad. Vid eigum flug til Dehli i kvold og vonum ad thar getum vid sett inn einhverjar myndir thvi her er thad ekki i bodi.

Kvedja fra heimsreisuforunum!

19.febrúar 2006

Aulinn 'eg!

Verandi svona algjor auli tha drakk eg sama og ekkert vatn seinustu tvo daga og ofthornadi. Nuna borga eg fyrir thad med hausverk og svima. :s buhu!

14.febrúar 2006

Stresskast

Að ætla sér að vinna fram á síðasta dag og ná öllu sem þarf fyrir heimsreisu var bjartsýni í meira lagi. Ég finnst ég vera að kafna en samt hef ég tíma til að skrifa inn á vefinn... úff þetta er einum of... 18 og hálfur tími til stefnu.

11.febrúar 2006

Loksins að koma einhver mynd á vefinn

Jæja, þá er loksins að koma einhver mynd á vefinn.  Enda styttist í ferðina.  Vinnsamlegast verið svo dugleg við að skilja eftir skilaboð hérna á vinstri hönd já og svo að kvitta í gestabókina.
Bara svona svo við vitum herjir eru að fylgjast með :D

Over and out - Gunni ekki til spenntur (H)


Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð