New York
Maí 2
Átti ekki flug til Ekvador fyrr en eftir 10 daga þannig að ég bara kom mér vel fyrir á góðu hosteli þarna á Manhattan. Kynntist þarna skemmtilegu fólki sem var líka á ferðalagi sem ég hékk með á þessum tíma.
Nýtti tímann í að undirbúa Suður Ameríku túrinn og kaupa þar sem mig vantaði upp á fyrir þá ferð. Djamm, og að sjálfssögðu skoða þessa mögnuðu borg.
Galapakos
Maí 2006
Eftir Nokkra daga í Quito þá var ferðinni heitið með flugvél til Galapakos þar sem ég var að fara hitta þennan 15 manna hóp sem ég var að fara vera með í viku á báti.
Við vorum á lítilli 20 manna snekkju, 2 í hverju herbergi. Þarna var allur aldur, allt frá 20 ára upp í að sá elsti var 73 ára.
Skipulagið á þessari ferð var þannig að við sigldum milli eyjanna, yfirleitt á kvöldin eða nóttinni þegar lengri ferðir voru. Yfir daginn fórum við í 2-3 skoðunarferðir inn á eyjarnar. Og svo kannski að kafa eða snorka 1-2 á dag.
Trukkaferðin
Apríl - Ágúst 2006
Hverjir: Gunni
Eftir góða viku á Galapakos þá lenti ég aftur í Quito. Var þar í nokkra daga áður en ég hitti hópinn minn sem ég var að fara ferðast með í þessari trukkaferð næstu vikurnar.
Trukkaferðin var skipt upp í 2 6 vikna hluta. Sumir voru bókaðir bara í fyrri hlutann og aðrir í báða hlutana. Svo komu líka inn nýir gestir í seinni hlutann.
Þessi ferð var þannig skipulögð að 2 af hverjum 3 nóttum vorum við að gista í tjöldum. Bæði bara einhversstaðar út í náttúrunni og líka á tjaldstæðum. Hinar næturnar gistum við á Hostelum.
Ferðamátinn átti sérstaklega vel við mig. Enda vorum við á sérútbúnum trukki og fara á staði þar sem túristi fer venjulega ekkert. Ferðuðumst í gegnum Ekvador, Perú, Bólivíu, Chile og Brasilíu. Á leiðinni skoðuðum við marga mjög magnaða staði þarna í suður Ameríku og má þá nefna:
Amazon frumskógurinn
Saltekrurnar
Floating Islands - Lake Titicaca
Machu Pichu og Inka Trail
Iguazu Falls
5 daga hestaferð í Argentínu
Nasca Lines
Moon Valey
Eftir ferðina þá stoppaði ég í um 10 daga í Río í Brasilíu þar sem var tekið duglega á því með krökkunum sem ég kynntist þarna áður en haldið var heim á leið.
Það er óhætt að segja að þessi ferð hafi verið algjör snilld í alla staði