Beint á leiðarkerfi vefsins

Gagnasvæði

Dagbókin

<< Fyrra Nýjustu færslurnar Næsta >>
Sjá Nýjustu | Allar Eða birta eftir árum | mánuðum | dögum

31.júlí 2006

Á heimleið

Jaeja, tha er madur bara a heimleid.  Er i New york nuna og er vaentanlegur a klakann seinnipartinn a morgun.
 
Langadi bara ad deila thvi med ykkur ad i gaer thar eg var a flugvellinum i Rio a leid til New York tha hitti eg ansi skemmtilega personu.  Var bara a rolltinu tharna i frohofninni og for tharna hja VIP solunum til ad hringja.  Thar innst a ganginum se eg engann annan en Ronaldo sitjandi a handfarangurstoskunni sinni spilandi tolvuleik i simanum sinum.  Gat nu ekki annad en farid til kappans og tekid i spadan a honum.  Reyndi ad spjalla vid hann en hann er nu ekki sa allra sleipasti i enskunni.  Endadi svo med thvi ad eg fekk hann til ad skrifa nafnid sitt i dagbokina mina.
 
 
 
Alveg hreint ut sagt GARGANDI SNILLD.  Frabaer leid til ad kvedja Brasiliu.
 
Eitthvad segjir mer thad ad hann Stefan se pinku ofunsjukur nuna.

29.júlí 2006

Haehae

Allt gott ad fretta herna af mer.  Thessa stundina er eg i Rio og trukkaferdinn buinn.  Madur er buinn ad bralla ymislegt herna i Rio enda hefur borgin mikid upp ad bjoda.  Svona fyrir utan ad taka tvi rolega og sleikja solina (30+ stiga hiti herna) tha for eg i svifflug i gaer.  Thad var algjor snilld.  Hlaupa fram af 500 - 1000 metra haum klettai og svifa bara i 10-15 minutur og lenda svo a strondini.  Besti dagur ferdarinnar var nu samt aftur a moti fyrir 3 dogum.  Tha forum vid nokkur a sja Vasco de gama vs flamengo.  Thetta var urslitaleikurinn i Brasiliu um hver yrdi meistari.  Staedsti leikur arsins herna i sudur ameriku.  Og leikurinn var haldinn a velli sem hefur einu sinni tekid 200 thusund manns.  En thad var adur en ad thad voru sett saeti i allar stukurnar.  Nuna tekur vollurinn held eg milli 100 og 150 thusund.  A thessum leik voru a milli 50 og 100 thusund manns thar sem thad var verid ad taka hluta af vellinum i gegn. 
Allavega leikurinn var alveg magnadur i alla stadi og alveg otrulegt ad fylgjast med folkinu herna.  Allir syngjandi og trallandi.  Skjotandi upp flugeldum inn a leikvanginum.  Svo i midjum leik brutust ut slagsmal i einni stukunni.  Vid erum ad tala um orugglega 2000 manns i hopslagsmalum.  Tok thad allt upp a video.  Hendi thvi herna inn ef einhver hefur ahuga thegar eg kem heim.
 
Talandi um ad koma heim.  Bara nokkrir dagar i klakann.  Var nu ekki alveg buinn ad atta mig a thvi hvad er stutt i thetta.  En audvitad verdur vodalega gott ad komast heim. 

18.júlí 2006

Iguazu falls

Hae ho, eg er enn a lifi.  Nuna styttist i heimferd.  Held ad flugid mitt se eftir 2 vikur.  Er svona a badum attum hvort mig langi til ad fara heim.  Thetta er bara of gaman en audvitad er fullt a klakanum sem togar i. 
 
I argentinu tha var natturulega eytt hvad mestum tima i ad horfa a HM eins og gefur ad skilja.  Forum svo i 2 daga hestaferd sem var alveg brilliant.  A leidinn thadan tokst trukkinum okkar ad bila, girboxid biladi og thar ad leidani thurftum vid ad keyra a 20 i nokkra tima til naesta stora baejar til ad lata laga thad.  Thad sem var gott vid thad ad thar sem trukkurinn var biladur tha fengum vid langtrada nott a hoteli i stadinn fyrir tjaldi.  Okkur strakunum datt tha i hug ad kikja ut a klubba lifid og vorum thar til 8 um morguninn ( sama tima og vid attum ad fara ).  HIttum tharna nokkrar fagrar argentiskar yngismaer og gatum natturulega ekki neitad thvi thegar thaer spurdu okkur hvort vid vildum ekki koma med them a annan naeturklubb.  Sa klubbur var ansi skondinn.  Eiginlega bara risastort einbylishus i midjum baenum thar sem voru 200 manns inni.  Tharna var svaka godur DJ og dansgolf.
 
Allavega, eftir ad trukkurinn komst i lag var svo bara haldid til Iguazu falls sem eru a landamaerum Argentinu og Brasiliu.  Og erum vid buinn ad eyda sidustu 2 dogum herna.  Degi sitthvoru meginn.  Thessi fossar eru sagdir vera fallegustu fossar i heimi og thvi er eg alveg sammala.  Algjor snilld i alla stadi.  Forum svo i thyrluferd i dag til ad sja tha enn betur.
 
Allavega, hafidi thad gott a klakanum.
 
Over and out.

6.júlí 2006

Argentína

Haeho
 
Er thessa dagana í sól og blídu í Argentínu og hitinn mun bara fara upp á vid eftir thetta.  Restinn af ferdinni er nokkurnvegin 10 dagar í Argentínu og svo 10 dagar á strondinni í Brasilíu. 
 
Bílstjórinn okkar Goeff er alveg búinn ad vera ad fara á kostum undanfarid.  Vorum fost í 2 auka daga í San Pedro í Chile thar sem hann hafdi óvart tekid med sér vitlaust tryggingarvottord fyrir trukkinn.  Var med 2 ára of gamalt vottord.  Svo loksins thegar hann nádi ad redda thvi thad logdum vid af stad.  15 tíma akstur til Salta í Argentínu sem vid aetludum ad keyra á 2 dogum.  Hann keyrdi tha upp á haedsta fjall sem hann fann í argentínu 4000+ og ákvad ad stoppa thar eftir einungis 4 tíma akstur og láta okkur tjalda thar.   Hitastigid fór nidur í -16 grádur takk fyrir.
 
Var svo ansi skondid sem ég heyrdi í gaer.  Herna í ferdinni er strákur frá Manchester og annar frá Liverpool.  Augljóslega koma oft upp skemmtielgar fótboltaumraedur tharna á milli.  Í gaer sagdi svo Keith ( liverpool ) ad ástaedan fyrir thvi ad Erik Cantona hafi alltaf haft kragan upp vaeri ut af thvi ad thegar hann var hja Leeds tha lét hann tattoera Leeds aftan á hálsin á sér og myndi hafa kragan uppi til ad thad saegist ekki í thad.  Og thegar vid fórum ad spyrja Alex ( united ) út í thetta tha vildi hann bara ekki svara thessu. (H).

27.júní 2006

Rúmlega hálfnud

Allt gott ad fretta af mer, er eins og er staddur í La Paz í Bolívíu.  Á leidinni hingad tha stoppudum vid fyrst i Puno og forum ut i "The Floating Village" sem er thorp sem er fljótandi á Lake Titicaka. Thadan var svo haldid hingad til La Paz med vidkomu í Cocacabanna.  Thar var farid í fjallgongu og eitthvad.  
 
Annars eins og gefur ad skilja tha eydir madur mestum tímanum í ad fylgjast med HM.  Fór á pubb í Cocacabanna thegar Argentína vs Holland var.  Stadurinn skiptist ad mestu leyti í tvennt.  Odrumegin voru slatti af ferdalongum fra argentínu og hinu meginn voru hollengingar.  Tharna var sungid og trallad stanslaust allan leikinn.
 
Annars er thessi trukkaferd hja mer rúmlega halfnud.  Nokkrir krakkarnir yfirgáfu svo hópinn í fyrradag og ný andlit baettust vid.  Skiptingin er núna 4 strakar og 12 stelpur (H).
Já svo baetist í hópinn íslenskt par.  Vodalega furdulegt ad getad talad íslensku aftur.  En madur reynir natturulega ad gera thad sem minnst svona svo ad adrir skilji eitthvad.
 
Í gaer gistum vid svo í Potosi sem er haedsta borg i heimi.  Thar er ad segja borg sem er haedst yfir sjavarmali.  Fórum thar í námu ferd sem var alveg mognud.  Silfurnáma sem er 2 km nidur í jordina inn í fjalli.  Dags daglega vinna um 10.000 manns tharna. 
 
Jaeja, maturinn kallar.
 
Over and out
Gunni.

18.júní 2006

Machu Picchu

Machu  Picchu

Machu Picchu

Undanfarnir dagar eru svo sannarlega búnir ad vera skemmtilegir.  Á leiðinni til cusco stoppuðum við aðeins inn i miðri eyðimörkinni og fórum í rally á buggy bíl og svo rendum við okkur nokkru sinnum niður háar sandbrekkur á snjóbretti.  Ansi magnað að fylgjast með liðinu sem hafði aldrei snert skíði né snjóbretti áður. 
Eftir það þá lá leiðinn til Nasca.  Ég fór í útsýnisflug á svona 3 sæta rellu til að sjá þetta betur. 
 
Er núna í Cusco og undanfarna 5 daga er ég svo búinn að vera að ganga Inca Trail og skoða Machu Picchu.   Gengum 40 kílómetra á 4 dögum og gistum í tjöldum í litlum þorpum á nóttinni.  Á kvöldinn var svo spilaður fótbolti við krakkana í þorpunum. 
Ganga sem slík var ekkert erfið.  Var nátturulega í 20 manna hópi og hluti af þeim fóru allt of hægt.  Það bitnaði nátturulega á okkur hinum sem vildu ganga þetta á almennilegum hraðar.  ( Sigga Eva, ég var með sama leiðsögumann og þú.  Smith biður að heilsa )
 
Gærdagurinn var svo að sjálfssögðu toppurinn þegar við fórum upp til Machu Picchu.  Þessi staður er nátturulega engu líkur og alveg magnað að koma þarna og sjá þetta.  Fórum í 2 tíma skoðunarferð og svo eftir það fórum við nokkur og klifum Machu Picchu fjallið.  Og svo í frammhaldi af því klifum við annað fjall á móti.
Dagurinn var svo toppaður þegar ég og 3 strákar ákváðum að hlaupa niður tröppurnar niður af fjallinu og reyna að vera á undan rútunni.  Venjulega fer fólk þetta á 1.5 tíma en okkur tókst að fara þetta á 30 mín og komum niður á sama tíma og rútann. 
 
Í gærkvöldi var svo farið út á djammið og haldið upp á 17 júni (H).  Var ansi gaman þar sem að fólkið hérna var að halda upp á afmæli Cusco og þar að leiðandi miðbærinn alveg troðinn af fólki og búið að setja upp svið líkt eins og á menningar nótt hérna.
Rakst svo á 2 íslendinga á pubbnum hérna.  Var ansi skondið og eiginlega alveg stórfurðulegt að tala við þau íslensku.
 
Verð hérna í Peru í 2 daga í viðbót og eftir það höldum við svo til Bolivíu.
 
Jæja, þarf að þjóta.  Er að fara spila fótbolta með einhverjum local strákum hérna. :D
 
Lífið er yndislegt.
Gunni.

6.júní 2006

Hata Peter Crouch

Allt gott að frétta af mér, undanfarnir dagar hafa verið mjög skemmtilegir.  Fórum í River Rafting nokkur saman sem var algjör snilld.  leiðin sem við fórum var um 20 km og var á leveli 3-4.  Svo daginn eftir þá fórum við í ísklifur.  Þurftum að keyra í rútu í rúma 2 tíma til að komast að jöklinum þar sem hann er í 5200 metra hæð.  Þurftum svo reynar að labba síðustu 2 km til að komast alveg að jöklinum.  Vorum þarna að klifra í ísnum í rúma 2 tíma.  Alveg merkilegt hvað hæðin hefur mikið að segja, eftir að hafa verið að djöflast þarna í 2 tíma ásamt fjallgöngunni á undan og eftir þá var maður alveg búinn á því.  
 
Er núna í Lima sem er höfuð borg Peru.  Þurftum að leggja mjög snemma af stað í gærmorgun hingað þar sem það var síðasti dagur í forsetakosningum hérna og bílstjórinn bjóst við því að ef kosningarnar færu ekki vel þá væru mótmælendur búnir að loka vegunum til að skapa vandræði.  Komumst þó hingað áður en úrslitin voru ráðin án vandræða.
 
Eyddi svo deginum í dag bara í að kíkja í búðir svona til að kaupa það sem mig vantaði áður en 4 daga fjallgangan hefst ( Inca trail ).  Ég og Damian ( þýskur strákur ) stukkum upp í taxa og báðum hann um að fara með okkur á stað þar sem við gætum keypt svona útivistarvörur.  Bílstjórinn sagðist vita um stað þar sem við gætum keypt allt og fór með okkur þangað.  Reyndist rétt þar sem var hægt að kaupa nánast allt milli himins og jarðar þarna.  Var ekki ólíkt kolaportinu nema þarna var til sölu alvöru varningur.  Keyptum það sem okkur vantaði og stukkum svo upp í taxta og héldum heim á leið.  Þegar við fórum svo að spjalla við bílstjórann á leiðinni heim þá kom það í ljós að þetta var víst svarti markaðurinn í Lima og víst ekki staður þar sem túristar ættu að vera á :S.
 
Hennti svo inn nokrum myndum áðan.
 
Galapakos : skoða
Ekvador og Peru : skoða

2.júní 2006

Smá veikindi í úglondum

Stein gleymdi að segja ykkur frá því.  Var fyrir því ólán að veikjast aðeins.  Vaknað einn morguninn og leið eitthvað voðalega undarlega.  Þurfti nátturuelga endilega að vera sá dagur sem allt gekk á afturfótunum.  Áttum að vera ferðast í 7-10 tíma en það endaði í 16 tímum. 
Það var meðal annars vegna þess að Linsey ( stelpa frá kanada ) var eitthvað að klappa belju þegar við stoppuðum til að elda hádegismat.  Haldiði að hún hafi ekki flogið á hausinn og skorði sig svo illa á hendi að það þurfti að fara með hana á spítala :S.   Svo seinna um kvöldið þegar við vorum að fara yfir landamærinn frá Ekvador til Perú þá tókst einum breta að láta stela af sér vegabréfinu.
 
En allavega þá var ég veikur og svaf mest allan daginn í rútunni sem var ekkert sérstakt þar sem það var lítið pláss og mikill hristingur.  Svo þegar við komum á tjaldsvæðið klukkan 23:00 um kvöld þá leigði ég mér hótelherbergi og fór beint í rúmið.  Svaf nánast án þess að vakna til klukkan 4 daginn eftir.   Tók því svo bara rólega í 2 daga og er orðinn eins og nýr núna.
 
Þetta var voðalega undarlegt, ég var ekki vondur í maganum, ekki með ælupest né hita.  Enginn hausverkur.  Bara einhversskonar vanlíði og alveg geðveikt þreyttur.
 
Gunni back to normal.

2.júní 2006

Gunni í Perú

Jæjajæja, hvað er búið að gerast síðan síðast.  Jú við keyrðum upp til Bellavista og tjölduðum þar inn í Regnskógi.  Aðkoman var alveg mögnuð þar sem við keyrðum yfir fjöll og utan í fjallshlíðum á mjög vafasömum vegum.
 
Því næst keyrðum við til Banos og fórum í 2 daga ferð inn í frumskóginn.  Þar fórum við t.d. í sundsprett í fossi þarna lengst inn í skóginum, löbbuðum um og fórum bátsferð niður á þarna.  Skoðuðum krókódíla, apa og margt margt fleira.
Gistum svo í svona opnum skógarhúsum þar sem maður heyrði niðinn í skóginum alla nóttina. 
Þar gerðist svoldið skondið, ein stelpan ætlaði að fara fyrr upp í rúm en kom fljótlega til baka alveg skít hrædd.  Haldiði að það hafi ekki verið alveg risa stór kónguló í rúminu hennar og þegar leiðsögumaðurinn fór til að skoða hana og fjarlægja hanan þá kom í ljós að þetta var ekkert venjuleg kónguló.  Heldur mjög árásargjörn og baneitruð kónguló.  Ef hún bítur mann þá deyr maður á 20mínútum :S.  Vitanlega urðu stelpurnar alveg skíthræddar og voru að hugsa um að fara ekkert að sofa þessa nóttina.  Ónefndur bauðst að sjálfssögu sig fram til að passa þær um nóttin (H).
 
Því næst var ferðinni heitið yfir til Peru og stoppuðum við á strönd þar sem við strákarnir eyddum mestum tímanum í að leika okkur á brimbrettum á ströndinni.   Aldrei séð aðrar eins öldur á sólarströnd. 
Í morgun lögðum við svo að stað í 10 tíma keyrslu upp í fjallaþorð í 3000 m hæð hérna í Peru.  Keyrðum meðfram gljúfri og vegurinn allsstaðar einbreiður og utan í mjög brattri fjallshlíð, get ekki ímyndað mér að lofthrætt fólk hafi haft gaman að þessari keyrslu.
 
Allavega, á morgun er ég svo trúlega að fara í fjallgöngu fyrrpartinn og svo River Rafting seinni partinn.  Daginn eftir það er svo stefnan tekin á ísklifur. 
 
Over and Out
Gunni.

22.maí 2006

Trukkaferdin byrjud

otavalo

Fjallgangan í
kringujm vatnið

Jæja þá er maður lagður af stað í þessa trukkaferð.  Hópurinn minn er eins og er 23 aðilar en verðum 24.  Einn gutti frá USA bókaði sér óvart vitlaust flug og er í Rio núna en ekki Quito:S.  Verður eflaust dýrt fyrir hann þar sem hann á örugglega bókað flug svo heim frá Quito.  Og að minnsta kosti mínum flugmiðum er ekki hægt að breyta né fá endurgreitt :S. En hann ætlar að hitta okkur skilst mer eftir nokkra daga. 
 
Allavega, þetta fer bara vel af stað.  Hér er fólk á öllum aldri, frá 18 og upp í 45 held ég.  Hópurinn er svona að mestu leiti frá Englandi, já eða allavega helmingurinn.  Svo eru krakkar hérna frá canda, swiss, belgíu og nátturulega íslandi. 
Fyrsta kvöldið fórum við út að á Tapas stað í Quito sem var alveg magnað af því leiti að staðurinn var ekki með matseðil.  Heldur voru þeir bara með vínlista.  Svo velur maður sér bara vínflokk, basicly verðflokk.  Og svo lengi sem maður heldur áfram að drekka þá halda þjónarnir áfram að koma með smárétti til manns.  Alveg magnað og eins og flestir geta ímyndað sér þá urðu allir saddir og vel kenndir.  Þetta kostaði einungis 10$ á mann :D.  Svo var þetta líka ágætt að því leiti til að þjappa hópnum saman.
 
Í gær keyrðum við svo til Otavalo og gerðum eiginlega ekkert meira í gær.  Í dag fór ég svo í 5 tíma fjallgöngu í kringum vatn hérna.  12 km í 3500 metra hæð.  Alveg ótrúlegt hvað þetta er miklu erfiðara í svona mikill hæð.  Auðvitað breyttist þetta í hálfgerða keppni og var ég að sjálfssögðu fyrstu í mark ásamt stelpu frá Canda og strák frá Englandi.  1.5 tíma á undan hinum (H)
 
Sigga Eva, bílstjórinn okkar heitir Jeff.  Átti að vera Jamie Kay en hann datt víst fram af svölum í síðustu ferð og þurfti því augljóslega að taka sér smá frí:S. 
 
Hafið það sem allra best
kv. Gunni.

18.maí 2006

GAlapakos

Hæhó,
 
galapakos bátur

Báturinn minn

Það var alveg svakalega gaman á Galapakos.  Flaug þarna út á laugardagsmorgun klukkan 7.  3 tíma flug með einni millilendingu.  Gekk allt saman mjög smurt fyrir sig og svo tók áhöfninn á bátnum við okkur og leiddi okkur í bátinn.  Þarna var fólk á öllum aldri héðan og þaðan.  Yngsta stelpan var 20 og svo var elsti 72 ára.
Gistum á báti á vegum ferðaskrifstofu sem heitir Aida Maria og tekur 16 farþega.  2 saman í káetu.
 
Galapakos er hreinlega ekki hægt að lýsa í orðum, maður hreinlega verður bara að fara þarna til að gera sér grein fyrir þessu öllu þarna.  Dýralífið er alveg hreint út sagt magnað. 
Öll dýrinn þarna eru svakalega gæf.  Fuglar skoppandi um að reyna komast ofaní bakpokan hjá þér til að komast í vatnið.  Eðlur og sæljón út um allt.  Risaskjalbökur ofl.
Svo í  gær var ég tildæmis að snorkla með slæljónum og skoða fiskana þarna.  Haldiði að þá birtist ekki bara 2 hákarlar þarna fyrir neðan mann.
 
Dagurinn í dag er búinn að vera frekar erfiður, hópurinn fór nefnilega út á djammíð í gærkvöldi og við vorum á bar til að verða 3.  Þurftum svo að vakna klukkan 6 til að fara skoða risaskjaldbökur og svo að ferðast aftur til Quito klukkan 10.  Ekki alveg þægilegasta flugferð sem eg hef upplifað. 
 
Allavega, verð hérna í Quito til 21 held ég.  Hitti hópinn minn 20.  Ætla reyna dæla inn einhverjum myndum á morgun frá Galapakos.
 
Over and out

14.maí 2006

Komin til Ekvador

Jaeja, tha er eg kominn til Quito i Ekvador.  Byrjadi ekkert allt of skemmtilega hja mer.  Ferdalagid fra New York tok einhverja 16 tima.  Ekkert serstaklega skemmtilegt thar sem thad var kikt a naeturklubb kvoldid adur og eg fekk bara 5 tima svefn.
 
Allavega, thegar eg kom svo upp a hotel a midnaetti tha bidu min skilabod thar um ad eg yrdi ad koma ut a voll i fyrramalid klukkan 7!!! til ad fa midana fyrir galapakos ferdina.  Eg sem var buinn ad plana ad sofa aerlega ut.  Allavega reif mig a faetur og taetti ut a voll.  Enginn thar natturulega.  Hringdi tha i neydarnumer og fekk thau skilabod ad thetta vaeri ekki fyrr en daginn eftir.  Stelpan a hotelinu hefdi bara gleymt ad skrifa thad a midan.  Alveg frabaert.  Taetti ad sjalfssogdu aftur upp a hotel og svaf til 2 :)
 
Fer svo til galapakos a morgun Jahuuuu.
 
Hennti inn nokkrum myndum fra Usa og Mexico.  Getid smellt her til ad skoda thaer.
 
Jaeja, best ad fara fa ser eitthvad i gogginn.

1.maí 2006

Suður Ameríku spjall

Spjallið úr Suður Ameríku ferðinni minni

Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð