2004
Um mitt sumar 2004 ákváðum ég Doddi og Jón Ívar að fara eitthvað erlendis. Fyrst var flogið til Porec í Króatíu. Leigðum okkur villu þarna sem var með allt í öllu. Var basicly lítið 3 herbergja einbýlishús þarna við ströndina. Porec er mjög fallegu staður og umhverfið mjög fallegt. En samt sem áður þá pirraði það mig gífurlega að þarna eru engar sandstrendur, heldur bara endalausar steinastrendur. Og því fannst mér þessi staður þegar uppi var staðið ekkert sérlega spes þar sem það eiginlega aldrei myndaðist svona sólarlandastemming.
Eftir viku í Króatíu þá leigðum við okkur bílaleigubíl og var stefnan tekin á Rimini á Ítalíu. Stoppuðum á leiðinni í Feneyjum og skoðuðum okkur um þar. Keyrðum bara inn á bílastæði þarna í útjaðri Feneyja og löbbuðum þarna um allt saman.
Eftir góðan dag í feneyjum keyrðum við svo til Rimini og vorum komnir seint um kvöld. Rimini olli okkur engum vonbrigðum enda ein skemmtilegasta sólarströnd sem ég hef farið á. Þarna var bara sólað sig á ströndinni á daginn og næturlífið á kvöldin.
Auk þess fórum við svo upp í San Marino og skoðuðum okkur um þar.