23-27. sept 2009
Hverjir: Gunni og Sonja
Ég og Sonja fórum til London að hitta krakkana sem ég fór í ferðalagið um Suður Ameríku 2006.
Lögðum af stað um miðjan dag á föstudegi og lentum um 10 leitið um kvöldið. Drifum okkur beint upp á hótel og til þess að getað náð því að fara á miðnætur sýningu á Comedy Central í miðbænum.
Þetta rétt hafðist þrátt fyrir að við lentum í smá veseni með hótelið sem við vorum bókuð á vegna framkvæmda hjá þeim.
Laugardagurinn fór svo að mestu í þetta Reunion. Náðum þó að fara aðeins á verslunargötuna og versla aðeins.
Upp úr hádegi héldum við svo af stað að hitta krakkana. Dagurinn var lítið skipulagður að öðru leiti en að við ætluðum að fara út á lífið um kvöldið. Hittum krakkana þarna á hverfispöbbnum þeirra Reiko og Faith. Sátum þar fram eftir degi og svo fórum við heim til þeirra, elduðum góðan mat og gerðum okkur tilbúin fyrir næturlífið.
Áttum miða á stað sem heitir GuiltiPleasures. Nei, þetta er ekki strippstaður þótt nafnið sé svolítið í þá áttina. Heldur er þetta staður sem er frekar vinsæll þarna í London. Þarna eru stór partý um hverja helgi og yfirleitt eitthvað svona þema. Hjá okkur var "safarí" þema og voru því flestir að búa sér til einhverja voðaflotta búninga til að fara í.
Restin af ferðinni fór svo bara í að versla og skoða túrista staðina þarna í London.