Noregur - Bergen - 30 afmæli Róberts
Páskar 2009
Hverjir: Gunni, Anton, Guðlaugur, Magnús, Teddi, Siggi Örn, Óskar, Gummi Már, Bangsi, Steini, Róbert
Það var ákveðið í tilefni 30 afmælis Róberts að fara nokkrir út og heimsækja hann. Leigðum okkur sumarbússtað 50 km fyrir utan Bergen. Vorum þar í 3 nætur og vorum svo á hosteli í Bergen í 2 nætur.
Snilldar ferð í alla staði, já eða fyrir utan kannski verðlagið þarna. Það er rugl.
Skoðuðum Bergen þokkalega og sáum ásamt því aðeins um sveitirnar þar sem við þurftum að keyra talsvert útfyrir þar sem bússtaðurinn var töluvert fyrir utan. Bergen er ansi flott enda er bæjarstæðið ansi sérstakt og svo bara umhverfið þarna fyrir utan er magnað þar sem það er allt sundurskorið af fjörðum.