2003
Um sumarið 2003 hélt Premier hópurinn í HR í útskriftarferð. Eftir miklar pælingar um áfangastað var haldið til Salou í 2 vikna ferð. Skemmtilegur staður sem hafði upp á margt að bjóða. Skemmtileg strönd, gott skemmtanalíf ásamt því að vera vel staðsett á Spáni. Klukkutími í Barcelona sem við einmitt nýttum okkur. Fórum í skoðunarferð um borgina, fórum upp í Monserat munkaklaustrið sem er þarna rétt fyrir utan og kíktum í vínsmökkun i Torres verksmiðjuna. Svo fórum við að sjálfssögðu í skemmtigarðinn Porta Ventura sem á að vera stærsti skemmtigarður í Evrópu að ég held.