Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinstri dálkur


Gagnasvæði

Blog

<< Fyrra Nýjustu færslurnar Næsta >>
Sjá Nýjustu | Allar Eða birta eftir árum | mánuðum | dögum

6.júlí 2011

Hanoi og Halong Bay

Það er óhætt að segja að það sé þreyta í okkur köppunum núna þar sem við sitjum hér lurkumlamdir í sjóðandi heitri flugvél á flugvellinum í Hanoi. Arabinn hefur einnig kvatt og haldið sína leið aftur í eyðimörkina.

 

Undanfarnir dagar hafa verið vægast sagt skemmtilegir og mikið að gera.  Stoppið okkar hérna í Vietnam var einungis 6 dagar og þeir eiginlega hurfu bara alveg um leið.  

 

Eina planið okkar fyrir Víetnam var að skoða Hanoi lítillega og fara svo í bátsferð um Halong Bay. Ferðin frá flugvellinum var ansi merkileg, aðallega fyrir þær sakir að vespur mátti finna á hverjum fermeter og með reglulegu millibili voru Karaoke-staðir og Bia Ha Noi (local pöbbar).  Við vorum búnir að fá meðmæli um hostel hjá áströlskum vinum okkar í Kambódíu og stefndum því á Hanoi Backpackers hostel.  Bílstjórinn okkar fann það þó ekki í fyrstu og stoppaði fyrir utan allt annað hostel.  Okkur fannst þetta ekki alveg passa og þrátt fyrir að hótelstjórinn þar reyndi mikið að fá okkur inn, gáfum við okkur ekki og enduðum á því að finna hostelið okkar.  Þegar á hólminn var komið, kom þó í ljós að hostelið var orðið fullt og því lítið annað að gera en að hoppa yfir á næsta hótel.  Það var kannski ekki besta hótelið í bænum, en vel ásættanlegt engu að síður og mun ódýrara en Backpackers.

 

Fyrsti dagurinn fór eiginlega bara í að sofa út og skoða borgina.  Vorum með háleit plön um gönguferð á alla helstu túristastaði borgarinnar en gáfumst fljótt upp á því, enda fólk og vespur út um allt.  Hvergi annarsstaðar í heiminum er annar eins fjöldi af þessum blessuðu farartækjum.  Gjörsamlega út um allt, menn bara sikksakkandi á götum og gangstéttum, helst hjálmlausir og svona 2-3 á hverri.  Engin umferðarljós og eiginlega alveg ótrúlegt að þetta gangi allt saman upp.

 

Á rölti okkar fundum við stærsta útibúið frá Hanoi Backpackers og ákváðum að bóka okkur 3ja daga ferð um Halong Bay með þeim.  Það kom þó reyndar í ljós að túrinn var nær fullbókaður og því ekki pláss fyrir okkur alla.  Við vorum því komnir niður á að fara bara í 2ja daga túr.  Við kíktum þó við í einhverri rælni inn á litla útibúið í hótel-götunni okkar og viti menn, það reyndist vera pláss fyrir þrjá í 3ja daga túrinn eftir allt saman.  Við slógum því til og tókum þann túrinn.  Um kvöldið kíktum við síðan yfir á hostelið, með það að markmiði að hitta fyrir eitthvað af því fólki sem væri að fara í túrnn og ná þannig smá tengslum við liðið fyrirfram.

 

Snemma morguninn eftir var svo lagt af stað í þessa líka algjöru snilldarferð.  Rútuferðin reyndist nú að vísu vera allt annað en eintóm sæla, því hún var bæði 5 tímar að lengd og rútan ekki útbúin fyrir vestræna ferðamenn.  Það fór reyndar ágætlega um Gunna, en kannski ekki alveg hægt að segja það sama um Jón og Dodda, enda eru þessar rútur hérna í vietnam kannski ekki alveg í réttri stærð fyrir menn um 190 á hæð.  Menn náðu þó að hafa ágætlega ofan af fyrir sér á leiðinni og kynnast skemmtilegu fólki.  Skiptingin var nokkuð skemmtileg á liðinu, nokkuð jöfn kynjalega séð, en fólk víða að.  Ástralir, Bretar, Írar, Íslendingar, Hollendingar og Zimbabwe-búar.

 

Þegar við komum svo til Halong City, vorum við fluttir út í bátinn okkar.  Flottur bátur á 3 hæðum, káetur neðst, borðstofa á miðhæðinni og svo sólbaðsaðstaða efst.  Þessir bátar eru flestir kallaðir Junks, en við höfðum fátt við bátinn að athuga og vorum bara mjög sáttir við hann.  Jón og Doddi voru bókaðir saman í herbergi og Gunni fékk herbergi með geysihressum og skemmtilegum Íra, honum Brian.

 

Báturinn sigldi um Halong Bay í nokkurn tíma, í leið að staðnum þar sem kasta átti akkerinu.  Þegar þangað var komið, skiptu allir yfir sundfatnað og fóru menn upp á 3ju hæðina og hófust handa við að stökkva í sjóinn, ýmist með þrefaldri skrúfu eða með stórkarlalegu skvampi.  Skrítið til þess að hugsa að vera úti á miðjum flóa, syndandi um án nokkurs björgunarbúnaðar.  Eftir dágóða stund í sjónum, var komið að kayak-ferðinni.  Jón og Gunni gerðu sitt besta til að halda uppi heiðri Íslendinga og réru lífróður mestallan tímann.  Kayökuðum okkur í gegnum hella, fórum í land og skoðuðum fleiri hella, fórum svo að einu Floating Village í mjög fallegu umhverfi og enduðum á því að kaupa bjór af localnum.  Menn stoppuðu svo inn á milli og tengdu saman báta til að ná stuttu spjalli í þessu magnaða umhverfi sem Halong Bay er.

 

Um kvöldið var svo öllu slegið upp í partý á bátnum og stóð það fram eftir kvöldi, já eða nóttu.  Drykkjuleikir í gangi sem endaði meðal annars með því að Gunni þurfti að skipta um föt við írska stelpu.  Var ansi smekklegur í kjól í 2 tíma.  Krakkarnir á bátnum fengu svo að smakka á íslenskum veigum, bæði Tópas og íslensku brennivíni og voru flestir sammála um að brennivínið væri mun betra, greinilega vara til útflutnings þar.

 

Daginn eftir var svo ræs kl 7:30, takk fyrir.  Okkur smalað úr bátnum og hent af á eyju sem þeir kalla Castaway Island.  Um er að ræða pínulitla eyju, með svona opnum Huts til að sofa í.  Engir veggir, ekkert Air Condition og í raun sannkölluð tjaldstemmning.  Boðið var upp á ýmsa leiki á sjó og landi frameftir degi.  Strandblak á ströndinni, spiluð tónlist í sameiginlegu rými, fínasta strönd og bara almenn skemmtilegheit.  

 

Sama reglan gilti þarna á eyjunni og á bátnum, gamla góða buffaló-reglan.  Sem sagt ef maður sést drekka eitthvað með hægri hendi, þá þarf maður að klára drykkinn. Skipti þar engu máli hvort klukkan var 7 um morgun eða 10 um kvöld.  Það gæti haft eitthvað að segja að Ástralir voru að skipuleggja ferðina.  Þeir kunna þetta í Ástralíu, já allavega að skemmta sér :)  Stemmningin var mjög skemmtileg langt frameftir kvöldi á eyjunni, Ipod-ar manna látnir ganga til skiptis í hljóðkerfinu og var Bubbi Morthens fljótlega orðinn einn nafntogaðasti maðurinn á eyjunni.

 

Dagarnir hurfu ansi hratt í ferðinni og óhætt að segja að manni hafi liðið örlítið eins og á þriðjudegi eftir Þjóðhátíð,  enda hafa dagarnir eiginlega verið þannig í þessari bátsferð :)

 

Síðasti dagur bátsferðarinnar fór í að koma fólkinu aftur til baka, fyrst sigling fram að hádegi og svo aftur hin einstaklega skemmtilega 5 tíma rútuferð.  Ekki fóru þó allir til baka í þeirri ferð, okkar nýi stórvinur, hann Brian, ákvað að verða eftir á eyjunni.

 

Lítið annað var svo gert í Hanoi annað en að næra sig og koma sér í rúmið, enda var ræs 6 í morgun fyrir flugið til Sri Lanka.

26.júní 2011

Phuket og James Bond Island

Þegar þetta er skrifað, erum við komnir til Kambódíu og búnir að koma okkur vel fyrir hérna.   En meira um það síðar.   

 

Daginn eftir að við kíktum á Beach-eyjuna, bættist við maður í hópinn, eins og var búið að vitna til.   Það var sjálfur Sádi Arabinn hann Doddi.   Hann ákvað að fljúga til okkar og ferðast með okkur í a.m.k. 2 vikur.


Hann hafði komið áður til Phuket og vissi fyrir vikið  um alla bestu staðina þarna og eftir það fékk maður strax betri fíling fyrir Patong Beach.  Stóð Doddi sig með stakri prýði sem leiðsögumaður :).  Fundum við strax okkar heimavöll, sem var írsk krá, Molly Malones, þar sem spiluð var lifandi tónlist hvert kvöld.  Sama bandið öll kvöld, en allgjör snilld í alla staði, virkilega vel spilandi og í raun meira bara tónleikafílingur í þessu hjá þeim.  Hljómsveitin er frá Filippseyjum, en þaðan eru flest böndin sem eru yfir höfuð áhlustandi í Tælandi.  Daisy og strákarnir hennar tóku svo við "requestum" utan úr sal og gátu í velflestum tilfellum klárað lögin af án nokkurra vandkvæða.  Starfsfólkið á staðnum var einnig mjög létt og skemmtilegt og var eitt atvikið einstaklega skemmtilegt, þegar ein starfsstúlkan gaf Jóni til baka með fullum poka af smápeningum í stað seðla.  Undrunarsvipurinn var þvílíkur að allt barliðið veltist um af hlátri - well played.

 

Flestir dagar fóru bara í afslöppun fyrri part og svo út að borða og á "tónleika" á heimavellinum eftir það.   Þá var ósjaldan gripið í Pool, bæði á ástralska staðnum "okkar" og á Mollys.  Héldum svo upp á afmæli Dodda þann 23.  Fórum út að borða á ítölskum stað, en það vita flestir sem þekkja hann að hann er sukker fyrir ítölsku.  Beint á Mollys og svo í framhaldi af því var farið á AC/DC cover tónleika á stað (Rock City), sem er staðsettur við endann á Bangla Road.   Virkilega skemmtilegt band, verulega færir hljóðfæraleikarar og voru menn alveg að lifa sig inn í AC/DC þarna, bæði við og hljómsveitin.  

 

Áður en við héldum svo aftur til Bangkok fórum við í dagsferð til James Bond eyjunnar (The Man with the Golden Gun).   Ákváðum í þetta skiptið að bóka okkur ekki í svona svaka túr eins og við gerðum með Beach-eyjuna.   Enduðum bara á því að taka eiginlega bara allra ódýrasta túrinn.  Meðal annars vegna þess að hann snerist mest megnis bara um að fara á þessa eyju, ekki verið að troða inn einhverju auka drasli.  Einnig spilaði það líka stórt hlutverk að hann fór af stað kl. 12 en ekki kl. 7 eins og hinir túrarnir.   Við erum nú í fríi og ekki mikill stemmari fyrir því að vakna fyrr hérna heldur en maður gerir heima á klakanum.

 

Túrinn varð mjög góður svo.  Stór og rúmgóð, gömul rúta sem pikkaði okkur upp.  Leiðsögumaðurinn í Sim's Tour var vægast sagt stórmerkilegur.  Í fyrstu hélt maður að þarna væri vel enskumælandi maður á ferð, opnaði túrinn með því að ávarpa bæði "Ladies and gents", en eftir það fór gamanið heldur að kárna.  Áherslur og framburður var slíkur að maður þurfti að geta reglulega í eyður.  Keyrðum með henni fyrst í einhvern klukkutíma, með The Man with the Golden Gun í tækinu og var þá stoppað smá við Monkey Cave, stað sem er með villta apa út um allt og flottum leðurblökuhelli sem innihélt m.a. Reclining Buddha.  Þar þurfti Jón að takast á við lofthræðslu sína, eftir að við klöngruðumst upp á efsta punkt í hellinum.  Skemmtilegt 20 mínútna stopp.

 

Svo var farið að höfninni, þar sem við fórum upp í lítinn 20 manna fljótabát, sem silgdi með okkur að James Bond eyjunni.  Komum fyrst við í fljótandi þorpi, sem er þarna rétt hjá og fengum okkur hádegismat, tókum flottar myndir og skoðuðum okkur um.  Því næst var haldið áfram í átt að eyjunni, sigldum í gegnum helli og mynduðum umhverfið þarna í bak og fyrir.

Sigldum fyrst fram hjá ströndinni og svo var farið í land fyrir aftan ströndina og labbað að henni.  Kom manni svolítið á óvart hversu lítil þessi eyja er.  Í raun bara alveg pínulítil.   En virkilega flott og gaman að koma þarna.  Hlupum þarna um eins og óðir túrbótúristar og mynduðum hvern krók og kima.   Þurftum að hafa hraðar hendur þar sem stoppið var einungis 40 mín.   Hefði alveg verið skemmtilegra að hafa aðeins meiri tíma þarna en náðum þó að mynda allt sem við vildum.  Túrinn var einnig mjög góður að því leyti að engir aðrir túristar voru á svæðinu og því gott næði til að ná góðum myndum.

 

Eftir dvölina á Patong Beach, héldum við svo bara nokkuð sáttir aftur til Bangkok, bæði sáttir við Phuket en í leiðinni bara alveg ágætt að yfirgefa þennan stað, sérstaklega í ljósi þess að kosningadagar stóðu yfir í Tælandi, en þá daga má hvorki selja bjór né aðra áfenga drykki í landinu.   Áttum eins dags stopp í Bangkok fyrir flugið til Kambódíu.  Gerðum í raun voðalega lítið þar annað en að fara út að borða á stað sem kallast Blue Elephant.   Frægur staður, m.a. fyrir það að þarna átti kóngafólkið að hafa borðað.  Virkilega góður matur en í leiðinni mjög dýr og í raun bara fokdýr, því einnig bættist við 30% ofan á reikninginn.

 

Áttum alveg ævintýralega leigubílaferð á staðinn.  Leigubílsstjórinn sem við fengum leit út eins og hann væri á einhverjum efnum, sprellaði og glotti nánast alla leiðina.  Babblaði við okkur á tælensku og sýndi okkur einhverja miða af allskonar sýningum sem hann væntanlega vildi fara með okkur á.  Vildi endilega sýna okkur eitthvað blátt video í símanum sínum, honum til mikillar skemmtunar.  Við vorum því allir fjórir í bílnum skellihlæjandi nær alla leiðina, hann út af einhverju sprelli og við að hlæja að þessum fíflagangi í honum.

 

Í raun snerist þessi leigubílaför um allt annað hjá honum, heldur en að koma okkur á veitingastaðinn, enda hafði hann ekki hugmynd um hvar hann var helminginn af tímanum, þrátt fyrir að við værum með heimilisfangið skrifað niður á tælensku.  Hófst þetta þó á endanum eftir klukkutíma akstur, tvö stopp við aðra veitingastaði, önnur tvö til að spyrja til vegar og allavega eitt í viðbót við blátt neonljós, sem hann taldi víst að væri rétti staðurinn.

 

Við kíktum svo við á Khao San Road eftir matinn og var sú upplifun aðeins öðruvísi en á venjulegu kvöldi þar, mjög róleg stemmning, enda vínbann í gangi.  Við fórum því snemma í háttinn, staðráðnir í að vera vel úthvíldir fyrir ferðalagið yfir til Kambódíu.

21.júní 2011

Phuket og Phi Phi

Nú erum við búnir að vera hér í Phuket í nokkra daga.  Svolítið mikill túristastaður.  Hér gengur allt út á það að ná af manni peningum.  Við vorum varla komnir út úr flugvélinni þegar mjög óvandað lið var farið að reyna selja manni gistingu eða ferð inn á staðinn. Hunsuðum það og fórum bara út og að merktu leigubílunum og tókum þannig.  Tæplega klukkutíma akstur.  Leigubílarnir hér eru ekki mikið fyrir öryggisbelti og í ljósi þess að bílstjórinn virðist hafa séð of margar Back to the future - myndir (fórum næstum aftur í tímann), stóð okkur ekkert alveg á sama.

 

Áttum eina nótt bókaða á hosteli hérna (Bodega Hostel) en þurftum svo að skipta yfir á hótel daginn eftir þar sem það var allt uppbókað á hostelinu næstu nótt.  Færðum okkur yfir á fínt hótel hérna rétt við aðalsvæðið.  5 mín labb að ströndinni og aðal verslunar- og skemmtunargötunni, Bangla Road.

 

Það er óhætt að segja að okkar fyrstu kynni af staðnum var ekkert sérstök, vægast sagt.  Hér mikið verið að reyna að selja manni allan fjandann og allskonar þjónustu sem maður hefur engan áhuga á.

 

Að ganga í gegnum Bangla Road, er nátturulega stórfurðuleg upplifun í fyrsta skiptið.  Þarna eru skemmtistaðir í hundraða tali og eiginlega bara í allar áttir.  Mikið um staði sem Tælendingarnir eru að reyna að tæla mann inn á, bæði til að selja manni dýra drykki, tælenskt box, tælenskt nudd, klæðskerasniðin föt og eiginlega allt milli himins og jarðar.   En inn á milli eru hinir fínustu staðir, írskir og ástralskir pöbbar, rokkbúllur, poolstofur og fleira.

 

En ef maður leiðir hjá sér mesta ruglið, þá er þetta hinn fínasti sólstrandarstaður.   Vissulega einn sá dýrasti í Tælandi þar sem þetta er mesti túristastaðurinn.   En engu að síður miklu ódýrari heldur en Spánn eða eitthvað svipað í Evrópu.  Tælenskur réttur er svona á svona rúman 500 kall á móti 1500 kall á íslandi.   Einnig er hægt að fá gistingu hérna niður í svona 400-500 kall nóttina.

 

Þegar við vorum búnir að vera hérna í 2 daga og búnir að ná úr sér mestri ferðaþreytu síðustu daga, fórum við svo í fyrsta skoðunartúrinn.  Bókuðum okkur í ferð til Phi Phi-eyja sem er eyjaklasi í svona 2 tíma siglingu frá Phuket.   Þessi staður er m.a. frægur fyrir að á einni eyjunni var myndin "The Beach" með Leonando DiCaprio tekin upp að hluta.  Einnig þykja eyjurnar skarta mikilli náttúrufegurð og skemmtilegu næturlífi.

 

Við löbbuðum hérna á milli nokkura ferðafyrirtækja og enduðum á því að velja einhverja ferð sem okkur fannst spennandi.  Um var að ræða svona 50 manna spíttara sem ætlaði að sýna okkur alla bestu staðina þarna.  Leit vel út í byrjun en eiginlega áður en við komumst upp í bátinn leist okkur ekkert á blikuna.  Guide-inn okkar fór eiginlega í taugarnar á okkur alveg frá fyrstu mínútu enda með einhverja rembingsstæla. Kallaði hún sig Lady Gaga og gaf frá sér mjög reglulega einhver ægileg hátíðnihljóð.  Held að það sé alveg fair að segja að hún hafi bara verið alveg hundleiðinleg.

 

Þegar báturinn fór af stað og brunaði í gegnum öldurnar þarna, sem eru nokkuð miklar á þessum tíma, þá kom einnig í ljós að báturinn var að hluta til nokkuð vanbúinn, því maður var eiginlega í stanslausri sjó-sturtu alla leiðina.  Þurftum við að hafa okkur alla við að reyna skýla myndavélatöskunum, orðnir alveg rennandi blautir eftir 5 mín og með gúlann fullan af sjó.

 

Svo loksins þegar við komum að "The Maya bay", þar sem myndin var tekin, segir "lady gaga" að við getum ekki komist þangað inn vegna ölduhæðar, basically eina staðarins sem við vildum fara á í þessum túr.  Fórum að skoða miðann frá túrnum og stóð þá með smáu letri að þau gætu breytt öllu hvenær sem er í túrnum og þegar betur var skoðað stóð heldur ekki að við fengjum að fara þarna inn. Áfram var haldið og siglt upp að nokkrum merkum stöðum þarna eins og "Viking Cave", "Monkey beach".  Bara rétt stoppað þarna og fengum að snorkla þarna aðeins á einum stað.   Næsta stopp var svo í hádegismat á aðaleyjunni, Phi Phi Don.  Þar var okkur hreinlega nóg boðið og tókum því spontant ákvörðun og hættum í túrnum.   Ákváðum bara að gista þarna, þrátt fyrir að vera í raun bara með okkur fötin sem við vorum í og myndavélarnar.  Fundum okkur flotta gistingu þarna og fórum í meira hardcore sunset túr.

 

Þetta reyndist vera snilldarákvörðun hjá okkur, enda eyjan hrikalega falleg og túrinn sem við fórum í var snilld (og kostaði 1/3 af því sem spíttararuglið kostaði).  Báturinn var um 20 metra langur og tveggja hæða, með opinni efri hæð og sóldekki fremst - kannski ekki nýjasti og flottasti í bransanum, en mjög góður í þessa tilteknu ferð.  Hrikalega skemmtilegir strákar sem sáu um að sigla með okkur.  Túrinn var vissulega hardcore þar sem við stoppuðum aðeins fyrir utan flesta staðina.  Myndarvélarnar voru bara settar í vatnsheldan poka og við þurftum svo að synda í land til að skoða hvern stað.

 

Fórum svo á kayak inn í flóa þarna sem var hrikalega flottur - háir klettar í allar áttir. Við tókum myndarvélarnar með okkur í vatnsheldum poka til að reyna ná einhverjum flottum myndum.  Vissulega ekkert voðelega notaleg tilfinning að taka þær upp úr pokanum á kayak en eftir á frábært enda flottar myndir þarna á ferð.

 

Eftir kappróður til baka, var svo einnig stokkið út í og snorklað þarna en svo haldið að aðaláfangastaðnum, "The Maya Bay". Þar syntum við í land að stað þar sem var svona 5 mínútna gangur á sjálfa ströndina.  Aðkoman var vissulega ekkert voðalega notaleg þar sem maður þurfti að synda að svona kaðalstigum.  Rétt við stigana var mjög mikið af oddhvössu grjóti og mjög erfitt að fóta sig, berfættur eftir langt sund.  Hafðist þó að lokum, en við þó aumir og allir út í litlum sárum á löppunum.

 

"Maya bay" var nátturulega snilld, mjög fallegur staður, þó vissulega hafi hann kannski ekki komið okkur mikið á óvart, enda hafði maður skoðað ótal myndir af staðnum áður og upplifað hann í gegnum kvikmyndina.  En vissulega mjög skemmtileg upplifun fyrir 2 kvikmyndanörda að standa þarna á sama stað og þessi frábæra mynd var tekin upp.

 

Eftir klukkutíma stopp þarna var svo bara siglt til baka í sólsetrinu, borðað mat á bátnum og endað á Phi Phi Don-eyjunni.  Þar þurftum við að að kaupa okkur nýtt outfit, enda öll fötin okkar orðin sjóblaut eftir allt sundið um daginn.   Eftir að gert hafði verið að sárum og skaðbrenndur Jón kældur niður með mörgum lögum af Aloe Vera, var svo farið út að borða á indverskan veitingarstað. Eftir það var aðeins kíkt á smá pöbbarölt og strandarstemmningin á Phi Phi Don skoðuð.  Fórum meðal annars á svona Thai boxing stað og fylgdumst með Tælendingum og túristum slást í thai-boxi.  Hittum þar m.a. skoskt par, en kom þá í ljós að stelpan var með húðflúr á íslensku - "Ágætis Byrjun".  Kunnum við vel að meta Phi Phi Don að næturlagi.

 

Morguninn eftir var svo bara tekin ferja yfir til Phuket og aftur upp á hótel í þeirri von um að ekki væri búið að pakka draslinu okkar saman, enda áttum við tæknilega séð að tékka okkur út fyrr þann dag.  Vorum þó búnir að láta hringja á undan okkur og láta vita af okkur þannig að það var nú ekki mikil hætta á því.

18.júní 2011

Bangkok has them now

Lentum um 9 um kvöld í Bangkok.  Vorum búnir að finna okkur gistingu í gamla hverfinu, þar sem flestir bakpokaferðalangarnir halda sig, rétt hjá Khao San Road.  Ákváðum að taka bara 2 nætur hér og svo ætluðum við að koma okkur til Phuket og koma þá frekar bara aftur til Bangkok áður en við hoppum yfir til Cambodíu.

 

Við hittum rússneska stelpu á flugvellinum, sem var að koma frá Nepal og deildum með henni leigubíl inn til borgarinnar.

 

Borgin er ansi hreint mögnuð, allavega sá hluti sem við héldum okkur hvað mest á.  Nóg að skoða og skemmtilegt mannlíf.  Það eru allir að reyna að selja manni eitthvað, aðallega þó klæðskerasniðin föt og ferðir með Tuk Tuk (hjóla-Taxa).  Við höfðum þó vit á því að taka frekar almennilega leigubíla (Taxi Meter), í stað þess að láta þá ákveða verðin.

 

Khao San Road (hin víðfræga göngugata) hefur upp á margt að bjóða. Þar er hægt að kaupa allan fjandann og borða alls konar mat, allt frá kakkalökkum upp í steikur, að ógleymdum hinum dýrindis tælenska mat.  Svo þegar líða tekur á kvöldin , myndast hálfgerð útihátíðarstemmning þarna og er líf og fjör langt fram eftir nóttu og mikið um bakpokaferðalanga.

 

Kynntumst við fólki frá hinum ýmsu stöðum í heiminum, Þjóðverjum, Áströlum, Skotum, Englendingum, Bandaríkjamönnum og hittum meira að segja einn Íslending.  Þegar klukkan datt yfir miðnætti 16 júni var að sjálfssögðu staðið upp og tekið 17. júni lagið fyrir fólkið sem við vorum búnir að kynnast.

 

Við skoðuðum alla helstu staðina eins og t.d. höllina - Grand Palace, Wat Pho (Reclining Buddha), fórum í siglingu á fljótinu, fórum upp í Golden Mount og margt fleira.

 

Við fórum þó lítið út fyrir gamla hverfið og eigum t.d. alveg eftir að fara upp í hina margumtöluðu Sky Train.  Það verður eflaust tekið fyrir eftir að við komum frá Phuket.

15.júní 2011

Forboðna borgin og fleira

 

Þegar þetta er skrifað, sitjum við um borð í Sri Lanka Airlines á leið frá Beijing til næsta áfangastaðar, Bangkok.  Búnir að fara í gegnum myndirnar og gera upp restina af Beijing stoppinu.

 

Gærdagurinn hófst á því að við komum okkur upp að Forboðnu borginni tiltölulega snemma og var pælingin að kíkja í heimsókn til Maó formanns.  Við komumst hinsvegar ekki inn í grafhýsið þar sem töskur og myndavélar voru stranglega bannaðar.  Við þurftum því að sætta okkur við að sjá BARA Forboðnu borgina.   Tókum okkur góðan tíma í að skoða hvern krók og kima.  Borgin var ansi mögnuð og greinilegt að að kínverskt keisaralíf hefur verið sannkallaður dans á rósum.

 

Þegar við vorum orðnir sáttir með heimsóknina í borgina, gerðum við enn eina tilraunina til þess að læra á þessi prik því engin eru hér íslensku hnífapörin og þjónarnir ekki heldur.

 

Svo var stefnan tekin á að skoða Temple of Heaven, eftir að hafa labbað verslunargötuna og skoðað ýmislegt á leiðinni.  

 

Eftir góðan tíma þar, var haldið áleiðis heim, Jón upp á hostel en Gunni áfram upp að Ólympíuleikvanginum.  Um kvöldið var svo ausandi rigning, þrumur og eldingar.  

 

Eftir að það stytti upp, var svo tekin ákvörðun um að fara aftur á Reggae-staðinn góða og þar tekið þægilegt kvöld við góða tónlist.  Starfsfólk staðarins voru þvílíkt sáttir að sjá okkur aftur og í lok kvölds vildu þeir svo fá hópmynd af okkur og þeim.

 

Næst á dagskrá, Bangkok...

 

11.júní 2011

London og Negombo

 

Hér liggjum við þreyttir og þvalir á Golden Sands-hótelinu á Negombo á Sri Lanka með Lion lager í hönd, hlustandi á hljómþýða röddu í fréttatíma frá Sri Lanka.

 

Fyrstu tveir dagarnir hafa einkennst af töfum flugfélaga og flugvalla.  Byrjaði allt á því að að Iceland Express-fluginu seinkaði um klukkutíma.  Þó ekki vegna verkfallsins, ekki eldgoss, heldur vegna þess að einn farþegi hafði týnt vegabréfinu sínu.  Það kom þó ekki að mikilli sök fyrir okkur þar sem við vorum ekki með háleit plön fyrir London-stoppið.  Einu markmiðin sem við höfðum sett okkur var að finna nýju Liverpool-treyjuna og nærast.  Þessu markmiði var náð og framlína Liverpool keypt á einu bretti.

 

Um kvöldmat héldum við svo af stað út á völl, í veg fyrir algjörlega óskrifað blað, Sri Lanka-flugfélagið.  Vorum svona heldur seint á ferðinni, en það vildi okkur til happs að það tekur langan tíma að fylla stóra Airbus-flugvél.  

 

Þurftum svo reyndar að bíða í 1,5 klst í vélinni áður en við gátum lagt af stað, þar sem flugvallarstjórnin á Heathrow var algjörlega í ruglinu.   Það skipti nú ekki miklu máli þar sem um var að ræða frekar stutt og "svona nett" flug.  aðeins 10,5 klst.   Það var reyndar í fínu lagi, þar sem flugvélin var góð og ekki skemmdi fyrir að flugfreyjurnar voru einstaklega vingjarnlegar og sætar.  Við myndum allavega bjóða þeim í afmælið okkar.

 

Þrátt fyrir langt og leiðinlegt flug, var maturinn framúrskarndi, fengum meira að segja matseðil til að velja úr.  Allir drykkir svo fríir allan tímann, hvort sem um var að ræða safa, kók, bjór, vín eða koníak.  

 

Lentum svo í Negombo í dag klukkan 15.  Okkur til mikillar undrunar og jafnframt til mikillar gleði, þegar við vorum að ganga frá Vísa-málunum, kom í ljós að með flugmiðanum fylgdi hótelgisting, skutl til og frá flugvelli ásamt mat á hótelinu.

 

Daginn nýttum við svo í að slappa af úti á svölum undir pálmatré og skoða okkur um Negombo.  Leigðum okkur local Tuk Tuk-bílstjóra, sem skutlaði okkur út um hvippinn og hvappinn.

 

Framundan er svo flott máltíð á hótelveitingastaðnum og svo verðum við sóttir af flugfélaginu, í veg fyrir næsta langlokuflug til Beijing.

 

Kveðjum að sinni úr landi Tamil Tígranna,

Gunni og Jón Ívar

 

7.júlí 2010

Istanbul

Jaeja tha er madur buinn ad vera herna i Istanbul i nokkra daga. Flott borg, mun staerri en eg bjost vid. Ja og eiginlega lika mun hreinni en mig hefdi grunad. Eina sem eiginlega er haegt ad setja ut a hana er ad hun er i dyrari kanntinum, ja eda allavega midad vid tha stadi sem eg hef verid a undanfarid. Tharf alveg ad borga 2 evrur fyrir bjorinn.

Maturinn herna getur verid odyr ef madur vill. Alveg haegt ad borda fina maltid fyrir 2-3 evrur. En thad eru tha bara svona local tyrkneskir stadir. Hef haldid mig svolitid vid tha enda vill eg upplifa matarstemminguna herna. En er samt ad verda frekar leidur a hvad tyrkir borda rosalega mikid braud og kebabb. Og svo er natturulega alltaf haettan a ad fa svolitid i magann thegar madur er ad borda a svona stodumm, thar er ad segja odyru local stodunum. En thad er nu bara partur af thessu. Thydir ekki ad vaela thad.

Fyrstu dagarnir herna foru vodalega mikid bara i thad ad vera turisti og skoda helstu turistastadina herna. Her er allt morandi moskvum. Blaa moskvan og Ayasofia standa nu samt svona hvad mest upp ur. For svo i batsferd herna a anni/sjonum og skodadi fleiri moskvur, kastala ofl. Nenni eiginlega ekki ad telja allt upp sem eg er buinn ad skoda herna thvi thad er orid svo margt og allt farid ad renna saman i eitt :S

Hostelid herna sem eg er a er hrikalega vel stadsett, er med utsyni yfir blau moskvuna fra efstu haedinni. Svo skemmir ekki fyrir ad thad er svakaleg HM stemming herna i gotunni thegar leikir eru :) Holland vs Brasilia stendur an vafa upp ur. Ein stelpan ur hopnum er nefnilega hollensk og vid ad sjalfssogdu studdum holland tha. Stadurinn sem vid vorum a var fullur af lidi fra brasiliu og svo vid, 10 sem heldu med holland. Byrjadi thannig ad thad voru tvilik laeti i brossunum. En svo forum vid ad lata heyra i okkur. Saud svo alve upp ur thegar Holland skoradi seinna markid. Thad var stokkid upp a bord med replicu af bikarnum og verid med laeti brossunum til mikillar gledi :) An efa eitt besta kvold ferdarinnar.

2.júlí 2010

Efes, Troy og Gallipoli


Selcuk var snilld.   Tharna var madur bara i rolegheitum vid sundlaugina eiginlega bara allad daginn.  Eina sem eg gerdi tharna annad var ad skodadi Ephesus og thad endadi nokkurveginn eins og eg helt.  Allar thessar rustir sem eg hef skodad undanfarid skemmdu held eg fyrir upplifuninni af thessum stad.  Var samt alveg magnadur stadur en madur hefdi orugglega notid hans betur ef eg hefdi verid ad sja svona hluti i fyrsta skipti.

Eftir goda daga tharna heldum vid svo i att til Istanbul.  Komum vid i Troy og skodudum hana.  Thad var reyndar buid ad vara okkur vid tvi ad fara thangad tvi tharna er i rauninni ekki neitt ad sja.  Stoppudum samt tarna thar sem thetta er nu i leidinni fyrir okkur.  Madur bara tjunadi adeins vaentingarnar nidur en greinilega ekki nogu mikid.  Tvi tharna er i rauninni nakvaemlega ekki neitt.  Tvilik vondbrigdi.

Gistum svo a stad sem heitir Eceabat.  Stadurinn er i rauninni ekkert merkilegur en thad sem gerir hann vinsaelan er ad hann er rett hja Gallipoli og forum vid og skodudum thad.  Frekar serstakt ad skoda sig um tharna svona i ljosi thess ad um 50 thusund manns dou tharna i fyrri heimstyroldinni.

Svo var bara haldid til istanbul og er eg thar nuna.  Kem svo til med ad setja inn einhverjar myndir fra Istanbul nuna a naestu dogum.

28.júní 2010

Capidocia - Termessos - Olu Deniz

Capidocia var magnadur stadur, ekki haegt ad neita thvi. Vissi lika ekkert um hann fyrir thannig ad hann kom skemmtilega a ovart. Skodudum tharna hellaborg sem um 1000 manns bjuggu i a sinum tima. Og thad eru vist margar svona borgir tharna og flestar eru thaer tengdar saman med gongum. Naer einhverja tugi metra nidur i jordina.

 

En eftir nokkud vel heppnadan tima i Gorme i Capadociu tha heldum vid i att til Strandarinnar. Stefnan var tekin a strond sem heitir Olu Deniz og a ad vera ein af 5 bestu strondum heims. A leidinni thandag tjoldudum vid i skogi upp i fjollunum. Var magnadur stadur inn a milli fjalla. Reyndar var ausandi rigning en thad var bara betra thegar madur var buinn ad setja allt upp, fatt notalegra en ad sofna og hlusta a riginguna og vakna svo upp i sol og blidu.

 

Thegar vid voknudum forum vid svo og skodudum rustirnar tharna sem heita Termessos. Hafdi ekki miklar vaentingar tegar eg for thandag enda er madur buinn ad sja miljon rustir undanfarid. En thessar voru miklu flottari en hinar. I fyrsta lagi voru thaer ekki i midri eydimork heldur upp i fjollunum med grodur i kring. Svo skemmdi heldur ekki fyrir ad madur thurfti ad taka klukkutima fjallgongu til ad komast ad theim. Engir turistar og ekkert bogg :)

 

Eftir thad var svo bara haldid til Olu Deniz. Hrikalega flott strond og thaegileg stemming. Thar var madur bara i godum fyling a strondinni og svo forum vid i batsferd seinni daginn og silgdum tharna milli eyja og stranda.

 

I morgun var svo haldid i att ad Selcuk thar sem Ephesus rustirnar eru og verda thaer skodadar a morgun. Taer eiga ad vera eitthvad vodalega magnadar. Eg er bara svolitid hraeddur um ad allar thessar rustir sem eg hef skodad undanfarid eigi eftir ad skemma fyrir upplifinunni a morgun. Vondandi ekki samt en sjaum til.

 

Efast um ad eg geri nokkud annad naestu 2 daga en ad skoda Ephesus, horfa a world cup og sleikja solina. Erum stodd herna a alveg snilldar svaedi. Er allt i ollu herna, flott sundlaug, likamsraekt, boltinn a storum skja svo eitthvad se nefnt :)

 

Eftir thad verdur svo bara haldid aleidis til Istanbul og a eg ad vera thar a fimt eda fost. KOmum reyndar vid a leidinni og skodum Troy.

 

Setti svo inn slatta af myndum, hafdi hreinlega ekki tima til ad velja thaer bestu ut thannig ad eg setti bara slatta inn ;)

 

23.júní 2010

Görme - Cappidocia - Tyrkalnd

Keyrðum í gær í fra Aleppo og yfir til Tyrklands. Forum fyrsti i sma gönguferð um miðbæ Aleppo með 70 manni sem byr þarna. Hann lifði sig svo inn í þetta að það var með ólíkindum.
Verð nú reynar að viðurkenna að ég var orðinn alveg brjálaður eftir svona hálftíma. Enda var þetta voðalega mikil sögustund hjá honum. Stoppað á 5 mínutna fresti og við fengum að vita öll smáatriði um staðinn. ÉG er nú bara meira fyrir að labba hratt yfir og skoða sem mest... wikipedia leysir hitt ;)

Um miðjan dag fórum við svo af stað til landamærana. Tók furðulega stuttan tíma að komast þarna í gegn miðað við það sem var ´buið að segja okkur. Átti að vera eitthavað vandamál að koma trukknum í gegn en það var svo bara ekkert mál.

Eftir landamærin var svo braa keyrt fram á kvöld. Þá stoppuðum við bara út í vegkannti, díluðum við bensinsjoppu um að fá að tjalda bak við hana, ansi gott brara. Klósett, sturtur og þvílík þægindi bara :)

Vökknuðum svo bara snemma og keyrðum upp í Cappidocia héraðið til staðar sem heitir Görme. Er nú reyndar braa nýkominn þangað þegar ég skrifa þetta en það er óhætt að segja að þetta er ótrúlegur staður. Hér er allt morandi í svona litlum klettum beint upp í loftið og búið að gera hella inn í þá.

Stoppum herna í 2 daga og höldum svo eitthvað í att að ströndinni.

Það eru einhverjar myndir af þessu hér fyrir neðan en eins og ég sagði þá er ég bara ný kominn þannig að það eru ekki mikið af myndum. Kemur bara næst.

Svo eru lika þær fau myndir sem eg tok á litlu vélina i þessum pakka.  gleymdi að setja inn myndir síðast ;)

21.júní 2010

Staddur i Aleoppo


Eg er staddur nuna i stad sem heitir Aleppo i Syrlandi.   Forum yfir landamaerinn til tyrklands a morgun :).   Alveg kominn med nog af syrlandi.

Stoppudum i 3 daga i Damascus og skodudum borgina agaetlega, eftir thad var svo haldid i att ad landamaerum Syrlands og Tyrklands.   Komum vid i castala sem heitir eitthvad Krak de Cheviler.   Ansi flott ad skoda hann.   Thadan heldum vid svo til Palmyra og skodudum enn meira af romverskum rustum. 

Svo i morgun keyrdum vid hingad til Aleppo og eiginlega ekkert buinn ad gera her.

A morgun verdur svo borgin eitthad skodudu og so farid yfir til Tyrklands seinnipartinn.

Tok ovart allar myndirnar bara i raw formatti thannig ad eg get ekki sett mikid af theim inn.  Nema thaer sem voru teknar a litlu velina :(  en laet thaer tho vada inn.  Betra en ekkert.

18.júní 2010

Mt. Nebo, Daudahafid og Jordania

Eftir goda dvol i petru var svo haldid afram lengra nordur i jordaniu.  Stefnan var tekin a mt nebo thar sem er flott utsyni yfir Daudahafid, Jerusalem og Jerico.  Vorum komin thangad um 5 leitid og tokum sma skodunarferd um Moses kirkjuna tharna upp a  mt. nebo.  Thar er lika rosalega flott utsyni yfir Daudahafid.

Svo tjoldudum vid bara tharna i fjallshlidinni.   Svo var bara grillad yfir solsetrinu og svo slegid upp vardeldi og haft thad kosi.

Tokum svo morguninn snemma og logum af stad til ad svamla i daudahafinu.  Vildum komast thangad adur en allur turistinn fyllir svaedid.
Tha er ohaett ad segja ad thad hafi verid furduleg tilfinning ad synda tharna.  tetta er natturulega seltasta vatn i heimi og alveg omogulegt ad sokkva tharna.   Tharna getur madur nanast hlaupid upprettur i vatninu.  Og bragdid af thessu, thad er eins og ad sturta salti beint upp i sig og bragdid hverfur ekkert.

Eftir daudahafid var svo haldid afram a naesta afangastad sem er Jerash.  Thar skodudum vid einhverjar eldgamlar romverskar rustir sem eg bara hreinlega thekki ekki :S.  En vissulega mjog flottar.

Daginn eftir var svo haldid af stad yfir til Damascus i Jordaninu thar sem eg er nuna. Komum reyndar vid a stad sem heitir Borsa og skodudum thar svona gamal hljomlistahus.

En nuna er eg i Damascus sem er hofudborg Syrlands og a vist ad vera elsta nuverandi byggda borg heims.  Flott borg, ja eda allavega midad vid thaer borgir sem eg hef skodad herna i mid austurlondum.  Nokkud hreing og fin bara og eiginlega alveg magnad ad her hefur folk buid i morg thusund ar.

For i gaer a staedsta veitingarstad i heimi (samkvaemt heimsmetabokinn) thekur 6014 manns i saeti.  tok turistahringinn i morgun med myndavlelina og tok slatta af myndum. Eeitthvad af theim eru herna fyrir nedan.

Milli thess ad hafa verid ofurturisti undanfarid og skodad allt of mikid af stodum a stuttum tima tha hefur timinn mestmegnis bara farid i thad ad sleikja solina og horfa a hm a pubbunum.

13.júní 2010

Wadi Rum og Klettaborgin Petra

Eftir frabaera daga i Dahab tha heldum vid af stad yfir til Jordaniu.  Logdum af stad eldsnemma thar sem vid thurftum ad taka ferju til ad sleppa vid ad krossa yfir landamaeri Israel.  Fyndna vid thessa ferju er ad thad er enginn serstakur timi a henni.  Madur verdur bara ad maeta snemma og svo bara fer hun einhverntiman.
Vid semsagt endudum a thvi ad vera maett i hana um 10 leytid en hun lagdi ekki af stad fyrr en 2.  Svo tok bara vid keyrsla til stadar sem heitir Wadi Rum og er ut i midri eydimorkinni.  Vorum kominn thangad um midnaetti.  Thar bidu okkar tjold sem vid svafum i.
 
Voknudum svo snemma morguninn eftir og forum i skodunarferd tharna um eydimorkina.   Ansi magnad landslagid tharna.   Reyndar 40 gradu hiti sem madur fann alveg fyrir thar sem vid vorum i nokkra tima tharna ad keyra um, upp a palli a pikkup.
Seinni partinn var svo bara pakkad saman og keyrt til klettaborgarinnar Petru.
 
Svo i dag erum vid buin ad vera skoda Petru.   Thad er ekki haegt annad ad segja ad thetta se einn magnadasti stadur sem eg hef komid til.   Alveg olysanlegur i alla stadi, miklu meiri og staerri en eg hefdi nokkrun timan haldid. 

A morgun verdur svo lagt af stad upp a fjall sem heitir Mount Nebo.  Thadan er gott utsyni yfir dauda hafid og jerusalem.  SVo heimsaekjum vid Daudahafid daginn eftir thad.  Held thad se ekki liklegt ad eg geti sett mikid af myndum inn a naestunni thar sem eg er mest megnis i tjaldi naestu 10-12 daga.  Reyni tho ad koma tvi vid ef thad er mogulegt.

10.júní 2010

Mt. Sinai og Dahab

Hitti krakkan sem eg er ad fara frdast med til Istanbul. Tharna eru 8 krakkar sem eru bunir ad ferdast alla leid fra capetown. Svo kom eg og 2 adrir strakar nyjir inn. Vodalega hress og skemmtilegur hopur :)

En allaega,vid logdum bara af stad snemma a thridjudagsmorgn um 7 leitid. Og keyrdum ad St. Sinai sem a vist ad vera heilaasta fjall i heimi. Vorum komin thangad um 3 leitid. Tha var bara tjaldad og tekid tvi rolega fram ad kvoldi. Forum svo snemma ad sofa tvi vid voknudum kl 2 um nottina til ad leggja af stad upp. Var ansi serstakt ad labba i 4 klukkutima i svartamyrkri. En madur vandist strax myrkrinu og thetta gekk bara allt vel. Hopurinn reyndar adeins og slow fyrir mig en thannig ad thetta var vodalega audvelt. Upp a topp eru 2300 metrar. Svo var bara horft a solarupprasina og labbad niduraftur. Tha forum vid aftur nidur, samt ekki somu leid. Forum nidur troppur sem eru eitthvad yfir 3000.Vorum komin til baka um 8.30 um morgunin.

Tha var bara bordadur morgunmatur, skodad Saint Catherines Monastery. EFtir thad logdum vid svo bara af stad til Dahab, sem er strandstadur herna vid rauda hafid. Her er alveg haegt ad hafa thad gott, djamm alla daga. Kiktum ut i gaer, atti ad vera rolegt kvold en endai med tvi ad madurvar syndandi i sjonum klukkan 5 i morgun:)

A morgun leggjum vid svo af stad yfir til Jordaniu. Forum med bati herna yfir og keyrum svo eitthvad i att til Klettaborgarinnar Petru :) Mjog spenntur, enda hefur thetta verid stadur sem mig hefur langad gridarlega lengi ad sja:):)

Gunni.

7.júní 2010

Pyramidarnir, Check

 

Vaknadi klukkan 7 i morgun eftir 5 tima svefn i svona 35 stiga hita :S.   Eiginlega bara ekkert notalegt.

Pakkadi draslinu nidur og for og fekk mer ad borda.   Rett fyrir 8 kom svo driverinn minn sem keyrdi mer um i allan dag.

Forum fyrst upp ad sakara, svo ad memphis og svo ad adalsvaedinu tharna hja Giza.  For frekar hratt yfir fyrstu 2 stadina enda eru their thannig sed ekkert merkilegir midad vid hinn.   

Hja Giza leigdi eg mer kameldyr og sem for med mig tharna um allt svaedid.  For svo inn i annan af thessum storu, smygladi litlu velinni inn og smellti af nokkrum myndum.  Svo eftir thad labbadi eg bara tharna um svaedid og skaut fullt af myndum.  Var reyndar ekki eins merkilegt og eg hefdi haldid en vissulega gaman ad vera buinn ad hafa komid thangad inn :)

Veit ekki hversu mikid eg verd i netsambandi thar sem eg fer fram Cairo i fyrramalid.  Samt vonast til ad geta sett eitthvad herna inn a lamark 3 daga fresti.

Hitti hopinn a eftir og tha aetti ad skyrast betur nakvaemlega hvda leid og hver eg fer naest.  En allavega aetti ad fara til jordaniu i tessari viku.

Rokk og rol

Gunni.

 

6.júní 2010

Cairo

 

Stoppadi nokkra daga i Koben thar sem litid annad var gert en ad sleikja solina og njota lifsins.  Var mjog heppinn med vedur thar sem thad var vist buid ad vera rigning og kuldi tharna lengi.  

En allavega, tha var haldid afram um midjan dag i gaer.  Lennti i nott klukkan 3:55 herna i Cairo.  Gekk furdulega smurt fyrir sig ad komast i gegnum flugvollinn og var eg bara kominn upp a hotelid klukkutima seinna.  Var buinn ad graeja ad eg yrdi sottur a vollinn og skutla upp a hotel.  Tegar eg kom ut stod tharna bara gaur med nafnid mitt a spjaldi og skutladi mer upp ad hotelinu.  Hitastigid var tha um kvoldid 29 gradur :S, eiginlega bara allt of heitt fyrir mig.

Svaf svo til 11 i morgun og for svo bara ut i gongutur um borgina.  Hitinn hefur orugglega farid i svona 40 gradur, sa eitt skilti i dag sem sagdi 38 gradur.  Labbadi herna ut um allt og smellti af myndum.  For upp i Cairo Tower til ad fa betra utsyni yfirborgina og na attum betur.   Thadan var t.d. haegt ad sja pyramidana ur fjarska :)

Helt svo bara afram ad rolta herna og taka myndir.  Lennti reyndar i sma veseni hvad thad vardar.   Var buinn ad rolta ut um allt og taka myndir af flestu.  Svo var eg kominn inn i eitthvad hverfi thar sem Israelska sendiradid er og var eitthvad ad taka myndir omedvitad.   Tha komu oryggisverdir og tok mig svona klukkutima ad losna undan thvi. Ma vist ekki taka myndir tharna :s.  Spiladi bara heimska turistann og tetta for vel ad lokum.  

Svo eru thad bara pyramidarnir i fyrramalid :)

 

24.maí 2010

Gunni goes to Middle East

 

Jæja nú er kallinn bara búinn að dusta rykið af bakpokanum og á leið í smá ævintýri.  Smá stress

komið í mann svona í ljósi þess að ég legg af stað einn.   En það er nú bara fyrstu dagana þar sem

ég mun hitta nokkra krakka í Cairo sem ég mun svo ferðast með áfram.

Leiðin liggur frá Cairo í Egyptalandi til Istanbúl í Tyrklandi.   Mun fara í gegnum Jórdaníu og

Sýrland.   Aldrei að vita nema það verði tekinn stuttur túr inn í Ísræel líka.  Væri gaman að skoða Jerúsalem.

En svona það sem ég ætla að skoða á þessari leið er t.d.

 

- Pýramídarnir í Cairo
- Fara upp á Mt Sinai
- Kafa í Rauða Hafinu í Jórdaníu
- Wadi Rum í Jórdaníu
- Klettaborgina í Amman
- Dauðahafið í Jórdaníu
- Mögulega Betlehem og Jerúsalem í Ísræel
- Skoða elstu byggðu borg heims, Damaskus.
- Skoða Troy í Tyrklandi
- Skoða Epaseus í tyrklandi
- Skoða Istanbul hluti þar í kring.

 

Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með þá mun ég reyna að setja inn ferðasögu og myndir hér inn á

gunnistefans.com og mögulega eitthvað líka á facebook.

Ferðin hefst eftir 8 daga, miðvikudaginn 2. júní.   :)

Kem með ítarlegri póst þegar nær dregur...





 

23.maí 2010

Gömu kirkja

Þessi mynd er tekin rétt hjá Hófsósi í skagafirði.  Tók hana sumarið 2009.

7.febrúar 2010

Efes, Troy og Gallipoli

Selcuk var snilld. Tharna var madur bara i rolegheitum vid sundlaugina eiginlega bara allad daginn. Eina sem eg gerdi tharna annad var ad skodadi Ephesus og thad endadi nokkurveginn eins og eg helt. Allar thessar rustir sem eg hef skodad undanfarid skemmdu held eg fyrir upplifuninni af thessum stad. Var samt alveg magnadur stadur en madur hefdi orugglega notid hans betur ef eg hefdi verid ad sja svona hluti i fyrsta skipti.

Eftir goda daga tharna heldum vid svo i att til Istanbul. Komum vid i Troy og skodudum hana. Thad var reyndar buid ad vara okkur vid tvi ad fara thangad tvi tharna er i rauninni ekki neitt ad sja. Stoppudum samt tarna thar sem thetta er nu i leidinni fyrir okkur. Madur bara tjunadi adeins vaentingarnar nidur en greinilega ekki nogu mikid. Tvi tharna er i rauninni nakvaemlega ekki neitt. Tvilik vondbrigdi.

Gistum svo a stad sem heitir Eceabat. Stadurinn er i rauninni ekkert merkilegur en thad sem gerir hann vinsaelan er ad hann er rett hja Gallipoli og forum vid og skodudum thad. Frekar serstakt ad skoda sig um tharna svona i ljosi thess ad um 50 thusund manns dou tharna i fyrri heimstyroldinni.

Svo var bara haldid til istanbul og er eg thar nuna. Kem svo til med ad setja inn einhverjar myndir fra Istanbul nuna a naestu dogum.

5.ágúst 2008

Ferðin á enda

Jæja þá erum við komin heim. Get nú ekki sagt að maður hafi verið tilbúinn að fara heim :(. Hefði nú alveg verið til í að halda áfram bara með bakpokann. En það er nú víst kreppa og allsstaðar dýrt þessa dagana þannig að þetta er nú bara orðið fínt í bili. Styttist bara í næstu ferð (H).

En allavega, við bara vorum snemma í því að fara út á völl. Tókum flugrútuna og vorum mætt 2.5 tímum fyrir brottför. Þá tók við endurskipulagning á töskum þar sem ein önnur taskan okkar var aðeins í þyngri kanntinum. Náðum að redda því með því að færa yfir í handfarangur.

Svo koma að því að tékka okkur inn í þetta blessaða Iceland Express flug. Það myndaðist strax sæmileg biðröð og bara 2 starfsmenn að innrita og allt sem þau gerðu var handskrifað. Veit ekki hvað var málið með það, væntanlega hefur tölvukerfið verið bilað þannig að hver aðili tók mjög langan tíma. Fyrir framan alla röðina var svo einhver hópur af mönnum með golf sett sem þarf að tékka eitthvað sérstaklega inn. Það leyndi sér líka ekki þarna að við vorum á leiðinni til Íslands þar sem þarna voru menn að troðast hægri vinstri í röðinni.

Klukkutíma seinna var röðin búin að færast um svona 5 metra. Þegar golf-ararnir voru svo búnir þá gekk röðin aðeins hraðar og þegar komið var að okkur þá var hálftími í brottför og við samt ekki næstum því öftust í röðinni.

Golfarar og Iceland Express voru ekki í neitt sérstöku uppáhaldi hjá okkur þarna (H)

Ferðin gekk bara ansi vel. Keyrðum 1500 km meira en við ætluðum í upphafi og endaði þetta í 6000 km. Heimsóttum 14 lönd ef England og San Marino eru talin með. Mér fannst Róm og kannski Prag standa mest upp úr en Sonju fannst Lux og Prag.

Ítalía var dýrasta landið í ferðinni og Róm var lang lang dýrasta borgin. Ódýrasta landið var Ungverjaland eða Tékkland.

Bestu vegirnir voru í þýskalandi, verstu í Tékklandi og fylgdi Ungverjaland fast á eftir þar.

Hef þetta ekki lengra að sinni. Hér fyrir neðan getið þið svo séð kort nokkurn veginn af leiðinni sem við enduðum á því að fara.

Endanlegt kort

4.ágúst 2008

Keyrt til Frankfurt

vöknuðum bara nokkuð snemma og fórum í morgunmat hérna á hótelinu í Prag. Smökkuðum þar einhverjar tékkneskar pulsur sem litu bara nokkuð girnilega út, sama verður því miður ekki sagt um bragðið af þeim. Klukkutíma seinna var þetta skítabragð enn að koma upp hjá manni - þvílíkur viðbjóður og í morgunmat.

Vorum komin on the road bara um 10 og 548 km til Frankfurt. Vegirnir í Tékklandi voru skömminni skárri þarna vestan megin við Prag í átt til Þýskalands. Svo þegar yfir landamærin og inní þýskaland þá var ekki hægt að kvarta undan neinu enda þjóðverjar þekktir fyrir að hafa bestu vegi í heimi.

Tókum pissustopp á sjoppu hérna við hraðbrautina rétt fyrir utan Nurmberg. Það var ansi skondið að því leyti að maður þurfti að borga og fara í gegnum svona hálfgert flugvallar/lestarhlið til að komast þarna inn. Svo þegar inn var komið þá voru þetta nýtískulegasta salerni sem við höfum séð. Pissuskálarnar voru með digital skjá með auglýsingum. Svona lítill flatur skjár innfeldur í sjálfa pissuskálina. Klósettið detectaði svo þegar maður stóð upp og sturtaði niður og svo kom út armur sem þreif sjálfa setuna. við vorum í sannleikasagt að hugsa um að fara út í bíl og ná í myndavélina og fara aðra ferð á klósettið en það hefði verið hálf kjánalegt að stana þarna inni að mynda klósettin.

 

Á brú í Frankfurt

Vorum svo komin til Frankfurt rúmum klukkutíma síðar en við ætluðum þar sem það voru miklar vegaframkvæmdir milli Nurmberg og Frankfurt. Ætluðum svo að reyna semja við bílaleiguna um að fá að taka einn auka dag með bílinn og fá að skila honum á flugvellinum þar sem völlurinn er um 100 km fyrir utan bæinn. Hertz voru alveg til í að leyfa okkur að hafa bílinn degi lengur. En þá þurftum við að gera upp samninginn og búa til nýjan fyrir þennan eina dag og þá voru nátturulega allt önnur verð í gangi. Skiluðum því bílnum og ákváðum bara að taka flugrútuna upp á völl.

Okkar fyrstu kynni af Frankfurt voru ekkert sérstök. Frekar kuldaleg og ljót borg. Umferðin alveg fáráðnleg. Vegir þröngir, fólkið pirrað og ekkert skrítið að flestir bílar eru meira og minna dældaðir hérna.
Álit okkar á borginni jókst þó aðeins eftir að við löbbuðum um miðbæinn og niður við ána. Þar var stemmingin bara allt allt önnur og sá hluti mun fallegri. Breytir því nú samt ekki að við munum ekkert fara hingað aftur í bráð.

27.júní 2008

Ekkert að gerast :S

Hér er ekkert að gerast í bili. Nýr vefur opnar innan tíðar með nýjum áherslum.

Ef þú getur ekki haldið aftur af þá er nóg af upplýsingum um mig að finna á slóðunum:

http://www.howdoyoulikeiceland.net
http://www.premierfc.net

Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð


Gunni í San Pedro - Chile