Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinstri dálkur


Gagnasvæði

Blog

5.ágúst 2008

Ferðin á enda

Jæja þá erum við komin heim. Get nú ekki sagt að maður hafi verið tilbúinn að fara heim :(. Hefði nú alveg verið til í að halda áfram bara með bakpokann. En það er nú víst kreppa og allsstaðar dýrt þessa dagana þannig að þetta er nú bara orðið fínt í bili. Styttist bara í næstu ferð (H).

En allavega, við bara vorum snemma í því að fara út á völl. Tókum flugrútuna og vorum mætt 2.5 tímum fyrir brottför. Þá tók við endurskipulagning á töskum þar sem ein önnur taskan okkar var aðeins í þyngri kanntinum. Náðum að redda því með því að færa yfir í handfarangur.

Svo koma að því að tékka okkur inn í þetta blessaða Iceland Express flug. Það myndaðist strax sæmileg biðröð og bara 2 starfsmenn að innrita og allt sem þau gerðu var handskrifað. Veit ekki hvað var málið með það, væntanlega hefur tölvukerfið verið bilað þannig að hver aðili tók mjög langan tíma. Fyrir framan alla röðina var svo einhver hópur af mönnum með golf sett sem þarf að tékka eitthvað sérstaklega inn. Það leyndi sér líka ekki þarna að við vorum á leiðinni til Íslands þar sem þarna voru menn að troðast hægri vinstri í röðinni.

Klukkutíma seinna var röðin búin að færast um svona 5 metra. Þegar golf-ararnir voru svo búnir þá gekk röðin aðeins hraðar og þegar komið var að okkur þá var hálftími í brottför og við samt ekki næstum því öftust í röðinni.

Golfarar og Iceland Express voru ekki í neitt sérstöku uppáhaldi hjá okkur þarna (H)

Ferðin gekk bara ansi vel. Keyrðum 1500 km meira en við ætluðum í upphafi og endaði þetta í 6000 km. Heimsóttum 14 lönd ef England og San Marino eru talin með. Mér fannst Róm og kannski Prag standa mest upp úr en Sonju fannst Lux og Prag.

Ítalía var dýrasta landið í ferðinni og Róm var lang lang dýrasta borgin. Ódýrasta landið var Ungverjaland eða Tékkland.

Bestu vegirnir voru í þýskalandi, verstu í Tékklandi og fylgdi Ungverjaland fast á eftir þar.

Hef þetta ekki lengra að sinni. Hér fyrir neðan getið þið svo séð kort nokkurn veginn af leiðinni sem við enduðum á því að fara.

Endanlegt kort

Athugasemdir

       


Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð