Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinstri dálkur


Gagnasvæði

Blog

24.maí 2010

Gunni goes to Middle East

 

Jæja nú er kallinn bara búinn að dusta rykið af bakpokanum og á leið í smá ævintýri.  Smá stress

komið í mann svona í ljósi þess að ég legg af stað einn.   En það er nú bara fyrstu dagana þar sem

ég mun hitta nokkra krakka í Cairo sem ég mun svo ferðast með áfram.

Leiðin liggur frá Cairo í Egyptalandi til Istanbúl í Tyrklandi.   Mun fara í gegnum Jórdaníu og

Sýrland.   Aldrei að vita nema það verði tekinn stuttur túr inn í Ísræel líka.  Væri gaman að skoða Jerúsalem.

En svona það sem ég ætla að skoða á þessari leið er t.d.

 

- Pýramídarnir í Cairo
- Fara upp á Mt Sinai
- Kafa í Rauða Hafinu í Jórdaníu
- Wadi Rum í Jórdaníu
- Klettaborgina í Amman
- Dauðahafið í Jórdaníu
- Mögulega Betlehem og Jerúsalem í Ísræel
- Skoða elstu byggðu borg heims, Damaskus.
- Skoða Troy í Tyrklandi
- Skoða Epaseus í tyrklandi
- Skoða Istanbul hluti þar í kring.

 

Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með þá mun ég reyna að setja inn ferðasögu og myndir hér inn á

gunnistefans.com og mögulega eitthvað líka á facebook.

Ferðin hefst eftir 8 daga, miðvikudaginn 2. júní.   :)

Kem með ítarlegri póst þegar nær dregur...





 

Athugasemdir

1
Kolla Sif
26.maí 2010
Have fun :D og gangi þer vel :D
2
Ingþór
2.júní 2010
Skemmtu þér vel
3
Friðgeir
2.júní 2010
Svei þér.... án mín?
4
Art
2.júní 2010
Góða ferð! Ég mun fylgjast með þér og svo munum við Jón skála fyrir þig nk laugardag!
       


Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð