Hér liggjum við þreyttir og þvalir á Golden Sands-hótelinu á Negombo á Sri Lanka með Lion lager í hönd, hlustandi á hljómþýða röddu í fréttatíma frá Sri Lanka.
Fyrstu tveir dagarnir hafa einkennst af töfum flugfélaga og flugvalla. Byrjaði allt á því að að Iceland Express-fluginu seinkaði um klukkutíma. Þó ekki vegna verkfallsins, ekki eldgoss, heldur vegna þess að einn farþegi hafði týnt vegabréfinu sínu. Það kom þó ekki að mikilli sök fyrir okkur þar sem við vorum ekki með háleit plön fyrir London-stoppið. Einu markmiðin sem við höfðum sett okkur var að finna nýju Liverpool-treyjuna og nærast. Þessu markmiði var náð og framlína Liverpool keypt á einu bretti.
Um kvöldmat héldum við svo af stað út á völl, í veg fyrir algjörlega óskrifað blað, Sri Lanka-flugfélagið. Vorum svona heldur seint á ferðinni, en það vildi okkur til happs að það tekur langan tíma að fylla stóra Airbus-flugvél.
Þurftum svo reyndar að bíða í 1,5 klst í vélinni áður en við gátum lagt af stað, þar sem flugvallarstjórnin á Heathrow var algjörlega í ruglinu. Það skipti nú ekki miklu máli þar sem um var að ræða frekar stutt og "svona nett" flug. aðeins 10,5 klst. Það var reyndar í fínu lagi, þar sem flugvélin var góð og ekki skemmdi fyrir að flugfreyjurnar voru einstaklega vingjarnlegar og sætar. Við myndum allavega bjóða þeim í afmælið okkar.
Þrátt fyrir langt og leiðinlegt flug, var maturinn framúrskarndi, fengum meira að segja matseðil til að velja úr. Allir drykkir svo fríir allan tímann, hvort sem um var að ræða safa, kók, bjór, vín eða koníak.
Lentum svo í Negombo í dag klukkan 15. Okkur til mikillar undrunar og jafnframt til mikillar gleði, þegar við vorum að ganga frá Vísa-málunum, kom í ljós að með flugmiðanum fylgdi hótelgisting, skutl til og frá flugvelli ásamt mat á hótelinu.
Daginn nýttum við svo í að slappa af úti á svölum undir pálmatré og skoða okkur um Negombo. Leigðum okkur local Tuk Tuk-bílstjóra, sem skutlaði okkur út um hvippinn og hvappinn.
Framundan er svo flott máltíð á hótelveitingastaðnum og svo verðum við sóttir af flugfélaginu, í veg fyrir næsta langlokuflug til Beijing.
Kveðjum að sinni úr landi Tamil Tígranna,
Gunni og Jón Ívar