Þegar þetta er skrifað, sitjum við um borð í Sri Lanka Airlines á leið frá Beijing til næsta áfangastaðar, Bangkok. Búnir að fara í gegnum myndirnar og gera upp restina af Beijing stoppinu.
Gærdagurinn hófst á því að við komum okkur upp að Forboðnu borginni tiltölulega snemma og var pælingin að kíkja í heimsókn til Maó formanns. Við komumst hinsvegar ekki inn í grafhýsið þar sem töskur og myndavélar voru stranglega bannaðar. Við þurftum því að sætta okkur við að sjá BARA Forboðnu borgina. Tókum okkur góðan tíma í að skoða hvern krók og kima. Borgin var ansi mögnuð og greinilegt að að kínverskt keisaralíf hefur verið sannkallaður dans á rósum.
Þegar við vorum orðnir sáttir með heimsóknina í borgina, gerðum við enn eina tilraunina til þess að læra á þessi prik því engin eru hér íslensku hnífapörin og þjónarnir ekki heldur.
Svo var stefnan tekin á að skoða Temple of Heaven, eftir að hafa labbað verslunargötuna og skoðað ýmislegt á leiðinni.
Eftir góðan tíma þar, var haldið áleiðis heim, Jón upp á hostel en Gunni áfram upp að Ólympíuleikvanginum. Um kvöldið var svo ausandi rigning, þrumur og eldingar.
Eftir að það stytti upp, var svo tekin ákvörðun um að fara aftur á Reggae-staðinn góða og þar tekið þægilegt kvöld við góða tónlist. Starfsfólk staðarins voru þvílíkt sáttir að sjá okkur aftur og í lok kvölds vildu þeir svo fá hópmynd af okkur og þeim.
Næst á dagskrá, Bangkok...