Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinstri dálkur


Gagnasvæði

Blog

18.júní 2011

Bangkok has them now

Lentum um 9 um kvöld í Bangkok.  Vorum búnir að finna okkur gistingu í gamla hverfinu, þar sem flestir bakpokaferðalangarnir halda sig, rétt hjá Khao San Road.  Ákváðum að taka bara 2 nætur hér og svo ætluðum við að koma okkur til Phuket og koma þá frekar bara aftur til Bangkok áður en við hoppum yfir til Cambodíu.

 

Við hittum rússneska stelpu á flugvellinum, sem var að koma frá Nepal og deildum með henni leigubíl inn til borgarinnar.

 

Borgin er ansi hreint mögnuð, allavega sá hluti sem við héldum okkur hvað mest á.  Nóg að skoða og skemmtilegt mannlíf.  Það eru allir að reyna að selja manni eitthvað, aðallega þó klæðskerasniðin föt og ferðir með Tuk Tuk (hjóla-Taxa).  Við höfðum þó vit á því að taka frekar almennilega leigubíla (Taxi Meter), í stað þess að láta þá ákveða verðin.

 

Khao San Road (hin víðfræga göngugata) hefur upp á margt að bjóða. Þar er hægt að kaupa allan fjandann og borða alls konar mat, allt frá kakkalökkum upp í steikur, að ógleymdum hinum dýrindis tælenska mat.  Svo þegar líða tekur á kvöldin , myndast hálfgerð útihátíðarstemmning þarna og er líf og fjör langt fram eftir nóttu og mikið um bakpokaferðalanga.

 

Kynntumst við fólki frá hinum ýmsu stöðum í heiminum, Þjóðverjum, Áströlum, Skotum, Englendingum, Bandaríkjamönnum og hittum meira að segja einn Íslending.  Þegar klukkan datt yfir miðnætti 16 júni var að sjálfssögðu staðið upp og tekið 17. júni lagið fyrir fólkið sem við vorum búnir að kynnast.

 

Við skoðuðum alla helstu staðina eins og t.d. höllina - Grand Palace, Wat Pho (Reclining Buddha), fórum í siglingu á fljótinu, fórum upp í Golden Mount og margt fleira.

 

Við fórum þó lítið út fyrir gamla hverfið og eigum t.d. alveg eftir að fara upp í hina margumtöluðu Sky Train.  Það verður eflaust tekið fyrir eftir að við komum frá Phuket.

Myndaalbúm


Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok
Bangkok

Athugasemdir

1
Gunna Stína
23.júní 2011
Ég hefði sko alveg viljað koma með í þessa ferð, stuttbuxur og ermalausir bolir. Hérna á norðurlandinu er ekkert svoleiðis og lopapeysan bara dregin fram, (að vísu var ekki búið að pakka henni.) Flottar myndir hjá ykkur en misgirnilegur matur. Haldið áfram að skemmta ykkur vel og koma með fréttir af ykkur :) Kærar kveðjur úr kuldanum.
2
Jón Ívar
23.júní 2011
Þetta er voðalega notaleg stemmning, þótt rakinn mætti vera öööörlítið minni. Maturinn í Tælandi er fyrsta flokks, svona ef maður horfir framhjá nokkrum götusölum.
       


Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð