Nú erum við búnir að vera hér í Phuket í nokkra daga. Svolítið mikill túristastaður. Hér gengur allt út á það að ná af manni peningum. Við vorum varla komnir út úr flugvélinni þegar mjög óvandað lið var farið að reyna selja manni gistingu eða ferð inn á staðinn. Hunsuðum það og fórum bara út og að merktu leigubílunum og tókum þannig. Tæplega klukkutíma akstur. Leigubílarnir hér eru ekki mikið fyrir öryggisbelti og í ljósi þess að bílstjórinn virðist hafa séð of margar Back to the future - myndir (fórum næstum aftur í tímann), stóð okkur ekkert alveg á sama.
Áttum eina nótt bókaða á hosteli hérna (Bodega Hostel) en þurftum svo að skipta yfir á hótel daginn eftir þar sem það var allt uppbókað á hostelinu næstu nótt. Færðum okkur yfir á fínt hótel hérna rétt við aðalsvæðið. 5 mín labb að ströndinni og aðal verslunar- og skemmtunargötunni, Bangla Road.
Það er óhætt að segja að okkar fyrstu kynni af staðnum var ekkert sérstök, vægast sagt. Hér mikið verið að reyna að selja manni allan fjandann og allskonar þjónustu sem maður hefur engan áhuga á.
Að ganga í gegnum Bangla Road, er nátturulega stórfurðuleg upplifun í fyrsta skiptið. Þarna eru skemmtistaðir í hundraða tali og eiginlega bara í allar áttir. Mikið um staði sem Tælendingarnir eru að reyna að tæla mann inn á, bæði til að selja manni dýra drykki, tælenskt box, tælenskt nudd, klæðskerasniðin föt og eiginlega allt milli himins og jarðar. En inn á milli eru hinir fínustu staðir, írskir og ástralskir pöbbar, rokkbúllur, poolstofur og fleira.
En ef maður leiðir hjá sér mesta ruglið, þá er þetta hinn fínasti sólstrandarstaður. Vissulega einn sá dýrasti í Tælandi þar sem þetta er mesti túristastaðurinn. En engu að síður miklu ódýrari heldur en Spánn eða eitthvað svipað í Evrópu. Tælenskur réttur er svona á svona rúman 500 kall á móti 1500 kall á íslandi. Einnig er hægt að fá gistingu hérna niður í svona 400-500 kall nóttina.
Þegar við vorum búnir að vera hérna í 2 daga og búnir að ná úr sér mestri ferðaþreytu síðustu daga, fórum við svo í fyrsta skoðunartúrinn. Bókuðum okkur í ferð til Phi Phi-eyja sem er eyjaklasi í svona 2 tíma siglingu frá Phuket. Þessi staður er m.a. frægur fyrir að á einni eyjunni var myndin "The Beach" með Leonando DiCaprio tekin upp að hluta. Einnig þykja eyjurnar skarta mikilli náttúrufegurð og skemmtilegu næturlífi.
Við löbbuðum hérna á milli nokkura ferðafyrirtækja og enduðum á því að velja einhverja ferð sem okkur fannst spennandi. Um var að ræða svona 50 manna spíttara sem ætlaði að sýna okkur alla bestu staðina þarna. Leit vel út í byrjun en eiginlega áður en við komumst upp í bátinn leist okkur ekkert á blikuna. Guide-inn okkar fór eiginlega í taugarnar á okkur alveg frá fyrstu mínútu enda með einhverja rembingsstæla. Kallaði hún sig Lady Gaga og gaf frá sér mjög reglulega einhver ægileg hátíðnihljóð. Held að það sé alveg fair að segja að hún hafi bara verið alveg hundleiðinleg.
Þegar báturinn fór af stað og brunaði í gegnum öldurnar þarna, sem eru nokkuð miklar á þessum tíma, þá kom einnig í ljós að báturinn var að hluta til nokkuð vanbúinn, því maður var eiginlega í stanslausri sjó-sturtu alla leiðina. Þurftum við að hafa okkur alla við að reyna skýla myndavélatöskunum, orðnir alveg rennandi blautir eftir 5 mín og með gúlann fullan af sjó.
Svo loksins þegar við komum að "The Maya bay", þar sem myndin var tekin, segir "lady gaga" að við getum ekki komist þangað inn vegna ölduhæðar, basically eina staðarins sem við vildum fara á í þessum túr. Fórum að skoða miðann frá túrnum og stóð þá með smáu letri að þau gætu breytt öllu hvenær sem er í túrnum og þegar betur var skoðað stóð heldur ekki að við fengjum að fara þarna inn. Áfram var haldið og siglt upp að nokkrum merkum stöðum þarna eins og "Viking Cave", "Monkey beach". Bara rétt stoppað þarna og fengum að snorkla þarna aðeins á einum stað. Næsta stopp var svo í hádegismat á aðaleyjunni, Phi Phi Don. Þar var okkur hreinlega nóg boðið og tókum því spontant ákvörðun og hættum í túrnum. Ákváðum bara að gista þarna, þrátt fyrir að vera í raun bara með okkur fötin sem við vorum í og myndavélarnar. Fundum okkur flotta gistingu þarna og fórum í meira hardcore sunset túr.
Þetta reyndist vera snilldarákvörðun hjá okkur, enda eyjan hrikalega falleg og túrinn sem við fórum í var snilld (og kostaði 1/3 af því sem spíttararuglið kostaði). Báturinn var um 20 metra langur og tveggja hæða, með opinni efri hæð og sóldekki fremst - kannski ekki nýjasti og flottasti í bransanum, en mjög góður í þessa tilteknu ferð. Hrikalega skemmtilegir strákar sem sáu um að sigla með okkur. Túrinn var vissulega hardcore þar sem við stoppuðum aðeins fyrir utan flesta staðina. Myndarvélarnar voru bara settar í vatnsheldan poka og við þurftum svo að synda í land til að skoða hvern stað.
Fórum svo á kayak inn í flóa þarna sem var hrikalega flottur - háir klettar í allar áttir. Við tókum myndarvélarnar með okkur í vatnsheldum poka til að reyna ná einhverjum flottum myndum. Vissulega ekkert voðelega notaleg tilfinning að taka þær upp úr pokanum á kayak en eftir á frábært enda flottar myndir þarna á ferð.
Eftir kappróður til baka, var svo einnig stokkið út í og snorklað þarna en svo haldið að aðaláfangastaðnum, "The Maya Bay". Þar syntum við í land að stað þar sem var svona 5 mínútna gangur á sjálfa ströndina. Aðkoman var vissulega ekkert voðalega notaleg þar sem maður þurfti að synda að svona kaðalstigum. Rétt við stigana var mjög mikið af oddhvössu grjóti og mjög erfitt að fóta sig, berfættur eftir langt sund. Hafðist þó að lokum, en við þó aumir og allir út í litlum sárum á löppunum.
"Maya bay" var nátturulega snilld, mjög fallegur staður, þó vissulega hafi hann kannski ekki komið okkur mikið á óvart, enda hafði maður skoðað ótal myndir af staðnum áður og upplifað hann í gegnum kvikmyndina. En vissulega mjög skemmtileg upplifun fyrir 2 kvikmyndanörda að standa þarna á sama stað og þessi frábæra mynd var tekin upp.
Eftir klukkutíma stopp þarna var svo bara siglt til baka í sólsetrinu, borðað mat á bátnum og endað á Phi Phi Don-eyjunni. Þar þurftum við að að kaupa okkur nýtt outfit, enda öll fötin okkar orðin sjóblaut eftir allt sundið um daginn. Eftir að gert hafði verið að sárum og skaðbrenndur Jón kældur niður með mörgum lögum af Aloe Vera, var svo farið út að borða á indverskan veitingarstað. Eftir það var aðeins kíkt á smá pöbbarölt og strandarstemmningin á Phi Phi Don skoðuð. Fórum meðal annars á svona Thai boxing stað og fylgdumst með Tælendingum og túristum slást í thai-boxi. Hittum þar m.a. skoskt par, en kom þá í ljós að stelpan var með húðflúr á íslensku - "Ágætis Byrjun". Kunnum við vel að meta Phi Phi Don að næturlagi.
Morguninn eftir var svo bara tekin ferja yfir til Phuket og aftur upp á hótel í þeirri von um að ekki væri búið að pakka draslinu okkar saman, enda áttum við tæknilega séð að tékka okkur út fyrr þann dag. Vorum þó búnir að láta hringja á undan okkur og láta vita af okkur þannig að það var nú ekki mikil hætta á því.