Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinstri dálkur


Gagnasvæði

Blog

27.júní 2011

Floating Village og Angkor Wat

 

Fyrstu 2 dagarnir í Kambódíu hafa verið frekar busy, flugum inn frá Bangkok og lentum hérna í Siem Reap.  Fundum okkur strax vingjarnlegan vel-enskumælandi leigubílstjóra sem skutlaði okkur inn í bæinn á loftkældum minivan.  Hann aðstoðaði okkur við að velja hótel og bauðst til að skutla okkur á milli nokkurra, þangað til við yrðum sáttir.  Það fyrsta sem hann fór með okkur á reyndist bara vera mjög fínt og kostaði þúsara á mann.  Maður fékk þó á tilfinninguna að hann væri að fara með okkur á einhver vina-hótel en skipti samt ekki öllu þar sem þetta var ódýrara en hótelin sem við höfðumverið að skoða fyrir.

 

Komum okkur fyrir á hótelinu og díluðum svo við hann Gana vin okkar um að keyra með okkur að The Floating village til að nýta daginn að fullu.  Hann var tilbúinn að keyra okkur í túr út daginn fyrir 5 dollara á mann.  Nokkur góður díll þar bara. Byrjuðum á því að fara og kaupa miða inn á svæðið sem var aftur á móti 20 dollarar á mann.  Virðist vera bara svona verðið inn í allt í Siem Reap.  Keyrðum í tæpan klukkutíma út fyrir bæinn að staðnum þar sem maður fer út á vatnið ( Tonle Sap ). Stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni og tókum myndir af sveitahúsum og umhverfinu þar.

 

Fljótandi þorpin breytast reyndast svolítið mikið eftir því hvaða árstími er og þar sem við erum hérna eiginlega í byrjun regntímabilsins, þá eru flest þorpin ekki úti á sjálfu vatninu heldur er búið að færa húsin upp að landi og inn í árnar.  Og svo menn geri sér grein fyrir því hversu mikill munur er á þurrk- og regntíma, þá er vatnið um 3000 ferkílómetrar núna, en fer alveg upp í 9000 ferkílómetra þegar það er stærst.  Það sem sagt þrefaldast í ummáli og hækkar um nokkra metra á dýpt.

 

Við ákváðum því að fara og skoða þorp sem er staðsett er á einni ánni, alveg við vatnið.   Leigðum bát sem sigldi með okkur út úr ánni og út á vatnið og svo til baka.   Þarna var mikið að sjá, fljótandi hús, kirkjur, skóla, íþróttahús, krókódílaræktun svo eitthvað sé nefnt.   Svo var nokkuð mikið um það að það væru krakkar siglandi þarna á milli með snáka um hálsinN, bíðandi eftir því að maður tæki mynd og vildu eftir það fá pening.  Jón lét undan í eitt skiptið eftir að við höfðum tekið nokkrar flottar myndir.

 

Um kvöldið var svo bara farið út að borða góðan mat, labbað um og næturmarkaðurinn skoðaður.  Þar er hægt að kaupa allan fjandann, eiginlega bara Kolaportið á sterum.  Svo eru þeir líka með Tuk Tuk gaura hérna líka, held það sé óhætt að segja að við séum búnir að fá nóg af því liði. Fórum svo frekar snemma í háttinn, enda vorum við búnir að díla við hann Gana um að taka heilsdags skoðunartúr snemma morguninn eftir um helstu hof bæjarins.

 

Vöknuðum snemma og Gana sótti okkur upp úr 8.  Settum upp plan sem gekk út á það að fara með okkur í öll helstu hofin.  

Byrjuðum á því að keyra um klukkutíma út fyrir bæinn og skoða bleika hofið, sem á að vera hof kvenna og fegurðar.  Svo skoðuðum við 2 minna fræg hof á leiðinni til baka.  Eitt flottasta hofið sem við skoðuðum var Ta Prohm, sem er frægt fyrir að hafa verið að hluta í fyrstu Tomb Raider myndinni.  Svo skoðuðum við Angkor Thom, sem var í raun gömul borg þessara tíma, þar sem Leper King réð m.a. ríkjum. Við enduðum svo á því að fara í það allra frægasta, sjálft Angkor Wat. 
Öll voru þau ansi mögnuð og Angkor Wat í algjörum sérflokki.  En svona eftir á að hyggja hefði maður frekar viljað byrja á því að fara þangað, því þá hefði fyrsta upplifun verið enn sterkari.   Engu að síður alveg magnað, eins og sést á myndunum.

 

Eftir að hafa hringsólað um öll þessi hof í heilan dag, enduðum við svo á því að fara upp á hæð hérna rétt hjá Angkor Wat þar sem á að vera voða fínt útsýni og flestir fara þangað til að horfa á sólsetrið.   Við fórum þangað en vorum  lítið hrifnir, vissulega ágætis útsýni en héldum samt sem áður að þaðan ætti að vera gott útsýni til að taka myndir af Angkor Wat en það var bara þarna í fjarska.  Þarna uppi var bara enn eitt hofið og lítið spennandi að auki,  stoppuðum stutt þar.  Sólsetrið hefði örugglega samt verið alveg magnað, en við vorum ekki að nenna að bíða eftir því í 1-2 tíma, svo við rúlluðum aftur niður hæðina og inn í loftkældan minivan vinar okkar Gana.

 

Myndaalbúm


Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía
Kambódía

Athugasemdir

1
Burkni
3.júlí 2011
Æðislegar myndir, er samt ekkert smá sáttur við myndina þar sem þið eruð að láta Garra rufa (latneska nafnið á fiskinum sem var að snyrta á ykkur tærnar. Vona að þið hafið borgað mikið fyrir það. Vorkendi fiskunum að vera að snyrta á ykkur tærnar:)
2
Stjáni
3.júlí 2011
Djöfull er gaman að skoða allar þessar myndir og lesa bloggin :) Hlakka nú orðið til að fá ykkur samt heim! Skemmtið ykkur vel ;)
       


Leiðarkerfi í fæti

Stjórnborð


Gunni í San Pedro - Chile